Greinasafn fyrir merki: Marius Pontmercy

Persónur, dýrlingar, illmenni og áhrifavaldar í Vesalingum Victor Hugo

Ísak, sonur minn, las Vesalinga Victor Hugo. Þegar hann smellti aftur síðasta kiljuheftinu leit hann á mig og spurði íbygginn hvaða skoðun ég hefði á Hugo, sögunni og hinum skrautlegu persónum hennar. Ég hafði haft meiri áhuga á frönskum höfundum tuttugustu aldarinnar en þeirrar nítjándu og viðurkenndi því að ég hefði ekki lesið þessa klassík. En Ísak var snortinn af bókinni að ég stóðst ekki áskorun hans. Ég færði mig aftur um eina öld, settist og las risasöguna í slumpum, rúmar þúsund blaðsíður og heillaðist – eins og Ísak.

Marglaga saga

Ég komst að því að Vesalingarnir er ekki aðeins skáldsaga eða sagnasveigur heldur líka túlkuð menningar- og samfélagssaga Frakklands frá lokum átjándu aldar og fram á fjórða áratug þeirrar nítjándu. Bókin kom út árið 1862 og margt er áhugavert í túlkun Hugo sem speglar og skýrir persónur, viðburði, þjóðfélagsbreytingar, byltingar, hernað, trú, réttarkerfi, menningu og meira að segja skólpræsakerfi Parísar. Hugo lá greinilega mikið á hjarta og persónur sögunnar urðu fulltrúar ólíkra lífsskoðana, átaka í samfélagsþróun og tákn siðferðilegra möguleika og ákvarðana.

Vesalingarnir er samviskurit, samfélagsrýni og íhugun um siðferði, trú, réttlæti og ábyrgð. Mér þótti sem hugmyndafræðingi skemmtilegt að sjá í ritinu franska útgáfu af magnaðri bylgju þjóðfélagsgagnrýni sem einkenndi nítjándu öldina. Mér hugnast semper reformanda. Hugo skrifaði ekki aðeins til að skemmta heldur líka til að opinbera óréttlæti, skerpa mannúð og iðka gagnrýni. Bókin er hvati til samfélagsbóta og gildaskerpingar einstaklinga.

Hugo áleit að kjör fólks og samfélagsaðstæður móti hegðun þess. Til að skilja manneskju verði að skoða ekki aðeins hvað hún gerir heldur líka hvaðan hún kemur, hvað hefur verið gert við hana og hvaða möguleikar hafa staðið henni til boða. Þjóðfélag og félagsgerð er ekki aðeins bakgrunnur eða rammi frásagnar Hugo heldur meðmótandi varðandi afdrif fólks, lífshamingju þess eða ólán.

Sögugerð Vesalinganna var önnur en ég var vanur og persónusköpunin er af allt öðru tagi en persónur raunsæisbókmennta. Og þar sem ég var nýbúinn að liggja í stórsögum Rússa 19. aldar var ég viðbúinn að persónurnar væru stórar og dramatískar eins og hjá Dostojevskí. Hugo stefnir sögufólki sínu í miklar raunir og reynir styrk þeirra. Hann magnaði rosann til að innri gerð þeirra kæmi í ljós. Annað hvort brotnar fólk í raunum sem og sjálfsmynd, siðferði og heimsmynd eða það stenst og verður til eftirdæmis. Ég listaði fyrir sjálfan mig prófíl vesalingana til að skilja drama sögunnar og nálgast sens et référence að hætti Ricoeur. Persónuyfirlitið er í framhaldinu en ég er enn að íhuga inntakið og vísanir.

Upprisa og afdrif Jean Valjean

Jean Valjean er söguhetja Vesalinganna og risi verksins. Hann var í æsku dæmdur fyrir að stela brauði handa svöngum börnum systur sinnar og var refsað með langri fangelsisvist sem var engin betrunarvist. Þegar hann losnaði úr þrælkunarbúðunum átti hann sem sakamaður enga upprisumöguleika. Hann var brennimerktur og samfélagið útskúfaði honum.

Umbreyting Valjeans hófst ekki í fangelsinu heldur vegna gæskuverks hins klóka Myriel biskups. Valjean stal silfurstjökum frá honum en biskupinn leysti hann úr fjötrum löggunnar með því að neita að silfrinu hefði verið stolið. Valjean slapp við refsingu en góðverkið breytti öllu. Biskupinn fordæmdi ekki fangann fyrrverandi heldur gaf honum færi til nýs lífs. Hugo rekur síðan vaxtarsöguna og segir frá áföllum á þroskaveginum. Valjean varð að æfa sig til dáða og nýs sjálfs. Hvað gerir menn að þeim sem þeir eru? Er það fortíðin, dómar samfélagsins eða siðferðilegar ákvarðanir?

Valjean tók sér nýtt nafn og ákvað nýja stefnu í lífinu. Hann varð athafnamaður, síðar bæjarstjóri og velgjörðarmaður samferðafólksins. En fortíðin elti hann. Í einni af mörgum siðklemmum bókarinnar komst hann að því að annar maður hefði ranglega verið talinn Jean Valjean. Hinn rétti Valjean gat þagað og haldið stöðu sinni og eignum. En þá yrði saklaus maður dæmdur í hans stað. Valjean varð að velja á milli eigin öryggis og sannleikans. Og ótrúlegt nokk var hann tilbúinn að velja erfiðu leiðna því hún var hinn sanna.

Í Vesalingunum var Valjean hvorki fullgildur borgari né sakamaður, hvorki innan kerfisins né alveg utan þess. Hugo gerði þessa mærastöðu að meginmáli í lífsbaráttu söguhetjunnar. Valjean var ekki dýrlingur en gerði sér grein fyrir hvort kostir væru réttir eða rangir. Hann valdi hið góða þó aðrir kostir væru honum auðveldari. Í siðklemmum hans var áherslan á að gott siðferði væri fólgið í samskiptum, ábyrgð, fórn og umhyggju en ekki fögrum siðfræðikenningum eða fagurgala. Manngildi kemur fram í verkum en ekki aðeins orðum.

Biskupinn og kærleikur í verki

Myriel biskup kom við sögu strax í upphafi bókarinnar. Án hans hefði Jean Valjean endað í tugthúsinu að nýju og vesalingar hefðu ekki verið orðfærðir. Mannelska Myriels og samstaða hans með jaðarfólki er siðferðileg forsenda allrar sögunnar. Biskupinn var ekki aðeins góðmenni heldur fulltrúi þeirrar kraftmiklu kristni sem var og er meira annt um lífið en kórréttar kenningar. Hugo aðhylltist þá gerð virkrar kristni sem lét sig velferð fólks varða umfram vald, fordóma og formhyggju. Slík samstöðuafstaða var einkenni frumkristninnar. Margir fylgjenda Jesú hafa skilið að manngildið er mikilvægara en stjórnkerfi manna. Victor Hugo var á þeim væng kristninnar. Silfurkertastjakarnir sem Myriel gaf urðu tákn þess að manneskjan er ekki þrælbundin fortíð sinni. Myriel spurði ekki aðeins fortíð heldur framtíð, ekki hvað Valjean hefði gert af sér heldur hvað hann gæti orðið. Nýtt líf og nýjir möguleikar eru raunveruleiki í þessum heimni. Í verkum og atferli Myriel og Valjean birtist inntak kristni.

Javert – löggan og algildi laganna

Javert var andstæða Valjeans, fulltrúi laga, reglu og samfélagslegs aga. Hann var ekki rakið illmenni heldur aðdáandi regluríkisins. Hann var þjónn laga og einbeittrar framkvæmdar þeirra. Javert fæddist í jaðarheimi og formhyggja og lagatrú hans helgaðist af fortíð hans. Hann hafði þörf fyrir skýra skiptingu heimsins í hið löglega og ólöglega, góða og illa, rétt og rangt.

Valjean ógnaði lífssýn og heimsmynd Javert. Ef sakamaður getur orðið góður og jafnvel betri maður en sá sem framfylgir lögunum var vegið að heimsmynd löggunnar. Það kom hvað skýrast fram þegar Valjean fékk tækifæri til að drepa Javert en hlífði honum. Sakamaðurinn miskunnaði sig yfir lögreglumanninn. Javert varð fyrir áfalli. Samkvæmt skoðun hans gat hinn fanginn fyrrverandi, hinn siðferðilega óæðri, ekki verið honum siðferðilega æðri. Þversögnin splundraði Javert sem kastaði sér í Signu. Hann gat ekki lifað í heimi þar sem nýtt líf gæti lifnað í heimi hinna dæmdu og fyrirlitnu. Victor Hugo var ekki anarkisti. Hann taldi að lög væru samfélaginu mikilvæg en lög ættu að þjóna fólki og tryggja réttlæti. Ekki mætti slíta þau úr samhengi við kærleika og skilning á aðstæðum fólks og samfélagsgerð.

Fantine og ranglæti

Með því að lýsa áfallasögu Fantine skýrði Hugo að samfélag getur eyðilagt manneskju án þess að hún hafi brotið af sér. Barnsfaðir hennar sveik hana og hún varð einstæð móðir í samfélagi sem fordæmdi slíkar. Til að geta séð fyrir sér og barninu varð hún að fela dótturina hjá Thénardier-hjónunum. Þegar upp komst að hún væri einstæð móðir var hún í kjölfarið rekin úr vinnunni. Hún seldi hár sitt, síðan tennur og loks líkama sinn. Fantine varð að lokum aðeins líkami til sölu. Samfélagið eyddi henni. Hún var ekki spillt heldur kramin. Ranglæti er ekki aðeins verk vondra einstaklinga heldur sprettur fram og verður vegna stofnana, fordóma og samfélagsgerðar. Fantine framdi ekki glæp heldur var það samfélagið sem níddist á henni, framdi glæp gegn henni.

Cosette og möguleikar

Cosette og Fantine mynda að samfellu í frásögn Hugo. Í sögu Fantine varð ljóst að samfélag getur kramið en í sögu Cosette var ljóst að velvild og kærleikur geta bjargað miklu og gert kraftaverk. Cosette þjáðist fyrstu æviár sín hjá Thénardier-hjónunum. Þegar Valjean tók hana að sér bjargaði hann henni frá spilltu umhverfi. En Cosette var ekki aðeins þiggjandi heldur  bjargaði honum líka. Valjean kynntist ást sem hann hafði ekki notið áður. Sjálfsbetrun einstaklings var ekki lengur eina verkefni hans í lífinu heldur ræktun og tengsl við aðra mannsekju. Hann varð sambandsvera. Cosette gaf honum hlutverk, heimili, kærleika og framtíð. Hugo sýndi að félagslegur arfur er ekki óumbreytanlegt böl. Taka má barn úr ómanneskjulegum aðstæðum og gefa því annað líf og tækifæri. Manneskjan er ekki aðeins tannhjól í vél óumbreytanleikans heldur mesta undrið.

Marius og mannrækt

Marius Pontmercy var hvorki dýrlingur né hugmyndaríkur byltingarleiðtogi. Hann var ungur maður í mótun og sumir túlkendur hafa séð þætti í sögu Victor Hugo í honum. Marius sveiflaðist milli stjórnmálaskoðana, milli áhrifa afa síns og föður, milli borgaralegs öryggis og byltingarhugsjóna. Ást hans á Cosette var líka rómantísk og túlkuð í anda rómantísku stefnunnar. Marius misskildi Valjean og sögu hans. Þegar hann komst að því að Valjean væri dæmdur sakamaður reyndi hann að takmarka samskipti Cosette við fóstra hennar. Marius dæmdi án þess að skilja og Hugo sýndi að jafnvel vænsta fólk geta ruglast og misstigið sig vegna fordóma sem leiddu til rangra ákvarðana.

Éponine

Éponine var dekruð af foreldrum sínum en Cosette, uppeldissystir hennar, var niðurlægð og misnotuð. Lífslán beggja snerist í flæði tímans. Á fullorðinsárum naut Cosette öryggis og ástar en Éponine sökk í fen fátæktar og óláns. Éponine og Cossette urðu dæmi um að aðstæður hafa áhrif á velferð og val fólks. En Éponine sýndi líka að aðstæður væru ekki óumbreytanleg örlög. Þrátt fyrir uppeldi í spillingarheimi valdi hún að hjálpa Mariusi að finna Cosette. Hún fórnaði sér og varð andstæða eigin föður.

Thénardier og Valjean

Thénardier var táknmynd spillingar. Hann var andstæða Valjean. Báðir voru jaðarmenn, báðir útsjónarsamir en urðu stöðugt að velja úr misvondum kostum. En þeir völdu á ólíkum forsendum. Valjean íhugaði hvað hann gæti gert fyrir aðra? En Thénardier áleit fólk vera tæki til að græða á. Hugo sýndi að mótlæti göfgar engan sjálfkrafa. Kreppur geta leitt til persónuþroska en líka eyðilagt fólk og kengbeygt það inn í sjálft sig með sjálfhverfu, svikum og grimmd. Thénardier lifði af. Dýrlingar og hugsjónamenn sögunnar dóu en hrappurinn lifði, sigldi til útlanda og hélt þar áfram ósvinnu sinni. Vesalingarnir eru ekki bók með einföldum lausnum og hamingjulyktum.

Enjolras og byltingin

Enjolras var holdgervingur byltingarhugsjónarinnar. Hann lifði og dó fyrir framtíðarsamfélagið. Hann var hugsjónamaður og píslarvottur byltingarinnar. Hugo lýsti dýpt hugsjóna hans, hugrekki og fórn en sýndi líka hve auðveldlega pólitísk hugsjón getur orðið alger og leitt til mikils böls. Götuvirki Vesalinganna voru vettvangur djörfungar, vináttu, fórna og vonar en líka tákn skelfilegs óraunsæis og fjöldadauða.

Gavroche og yfirgefna barnið

Gavroche var sonur Thénardier-hjónanna. Hann var fátækur, vanræktur en samt frjáls, fyndinn, hugrakkur og örlátur. Þó hann nyti engra samfélagsgæða var hann engu að síður gjafmildur. Hann dó í götubargdögunum í París og dó fyrir framtíð samfélags sem gaf honum ekkert.

Manneskjan er meira en almenningsálitið

Victor Hugo dró upp í Vesalingunum sterkar og skýrar persónur. Hann notaði þær til að skoða og túlka samfélagskerfi, trú, réttlæti og siðferðilega möguleika mannsins. Hugo mótaði þær sem táknverur fremur en að búa til raunsæispersónur. Valjean, Javert, Éponine, Marius lentu í krefjandi lífsglímum sem reyndu gildi þeirra og sjálfsmynd. Hugo kannaði burðarþol kerfa og hugmynda, dengdi saman lögum og elsku, samfélagslegri nauðhyggju og siðferðilegu frelsi. Fantine sýndi hvernig aðstæður geta kramið manneskju. Thénardier var dæmi um að mótlæti göfgar engan sjálfkrafa. Éponine leiddi í ljós að hægt væri að brjótast úr siðferðisarfi fjölskyldu. Javert opinberaði að jafnvel dyggð getur orðið miskunnarlaus ef hún er slitin úr samhengi umhyggju og mannvirðingar. Í Myriel birtist að einfaldur velgerningur getur gert kraftaverk. Jean Valjean var skýr vottur um að ekki eigi að skilgreina fólk út frá því versta sem það hefur gert í lífinu.

Vesalingar Victor Hugo er um manngildi. Fólk eigi ekki að skilgreina í ljósi stöðu, fortíðar eða almenningsálits. Manndómur fólks er ekki stéttbundinn, heldur kemur fram í hvort það axlar ábyrgð, hvort það velur hið góða eða fer auðveldustu leiðina og flýr af hólmi. Vesalingarnir eru ekki saga um fátækt, glæpi, byltingu og ást heldur um hið róttæka frelsi manna og val, jafnvel í aðkrepptustu aðstæðum. Immanúel Kant er á milli línanna hjá Hugo. Vesalingaritið er klassík vegna þess að stóru stef bókarinnar og spurningar varða alla menn á öllum tímum. Í Vesalingunum er plús sem kallar eða höfðar til mennsku fólks og samvisku. Það voru stóru málin sem hrifu okkur Ísak báða.

Hann leynir á sér – Hugo.