Greinasafn fyrir merki: lýðræði

Gæðingaveldi – þegar stjórinn stelur ríkinu

Stjórnmálafræðin er skemmtileg. Nýlega rakst ég á hugtakið patrimonialism, sem ég hafði ekki séð fyrr. Ýmsir skýrendur nota heitið til að skýra hegðun núverandi forseta Bandaríkjanna. Ég komst að því að í patrimónlialísku stjórnkerfi er þeim umbunað, sem hlýða stjórnandanum, með alls konar gæðum. Til verður gæðingakerfi.

Meðan ég hef ekki fundið skárra heiti nota ég orðið gæðingaveldi. Í þess konar stjórnkerfi notar leiðtoginn opinbert vald, fjármuni og stofnanir ríkisins til að tryggja eigin stöðu og umbuna þeim, sem sýna honum hollustu. Ríkið verður persónulegt valdakerfi leiðtogans, stuðingsmanna og samstarfsfólks hans. Embætti, fjármunir, samningar og tækifæri eru ekki veitt samkvæmt almennum reglum, hæfni og jafnræði heldur hverjir standa næst valdinu og styðja stjórann. Í stjórnmálafræði eru þetta talin helstu einkenni nýpatrimonialisma.

Max Weber greindi á sínum tíma á milli persónulegs valds og lögbundins embættisvalds. Í réttaríkjum nútímans er valdið skilgreint af lögum og útfært af stofnunum ríkisins. Embættismenn eiga að þjóna almenningi en ekki leiðtoganum, einstaklingi sem stjórnar. Gæðingaveldi umsnýr forgangsröðinni og stofnanirnar verða í auknum mæli þjónar valdhafans. Og völdum er breytt í peninga, valdastöður eru notaðar til að auka ríkidæmi valdhafanna. 

Gæðingaveldi þróast oft án þess að lýðræði sé afnumið. Kosningar eru haldnar, þing starfar og dómstólar dæma en valdahlutföll breytast. Leiðtoginn skipar hollvini í lykilembætti, veitir stuðningsmönnum opinbera samninga, beitir stjórnsýslunni gegn andstæðingum og gerir kröfu um persónulega tryggð og hollustu. Sjálfstæðar eftirlitsstofnanir veikjast og mörkin milli ríkishagsmuna, flokkshagsmuna og einkahagsmuna veiklast eða hverfa.

Gæðingaveldið verður eitrað þegar það tengist fámennisveldi auðmanna. Fjársterkir einstaklingar styðja leiðtogann með fjárframlögum, fjölmiðlavaldi eða áhrifum og fá í staðinn aðgang að opinberum gæðum, verðmætum og ákvörðunum. Stjórnmálavald og auðvald fléttast saman. Við slíkan kokteil er almannahagsmunum vikið til hliðar fyrir hagsmunum þeirra, sem tilheyra innsta hringnum.

Afleiðingarnar geta orðið víðtækar og slæmar. Hæfni og þekking víkur fyrir hollustu, spilling vex og traust til stofnana minnkar. Farið er á svig við lög og tiltrú almennings dofnar utan valdahringsins. Þau, sem gagnrýna valdhafa, eiga á hættu að missa áhrif, störf og réttindi. Smám saman læra borgararnir, að árangur byggist á tengslum fremur en verðleikum.

Spilling vex og lýðræði veiklast. Réttindi fólks minnkar og velvilji valdhafans er aðalmálið. Greiðar koma í stað réttinda og opinber þjónusta verður umbun fyrir undirgefni. Gæðingaveldi er andstæða réttarríkisins. Í lýðræði er vald tímabundið umboð frá fólki, en í gæðingaveldi notar leiðtoginn ríkið eins og það sé hans eign. Lýðræði veikist þegar hollusta við einstakling verður mikilvægari en trúmennska við lög, réttlæti og almannaheill.

Kunnuglegt? 

Hver mun stjórna heiminum eftir hundrað ár?

Þróun heimsmála á árinu 2025 hefur verið flókin. En hver verður þróun stjórnmála, tækni og bandalaga þjóða næstu áratugina? Hver mun stjórna eftir eina öld? Fæst okkar sjá framvinduna fyrir því við þekkjum ekki tækninýjungar framtíðar, mengun, orkumál og stríð. En þó er hægt að fullyrða að flétta ríkja, viðskiptabandalaga og hernaðarbandalaga mun breytast mikið og jafnvel verða úrelt í þeirri mynd sem við þekkjum frá tuttugustu öldinni. Tækniþróunin er stærsta breytan. Þjóðríki munu veikjast sem og hernaðar- og viðskiptabandalög. En hvað svo? Það verða ekki Kínverjar, Evrópusambandið eða Indverjar sem munu stjórna heiminum eftir hundrað ár. Tæknirisarnir munu stýra heimsbyggðinni – svo fremi sem tæknikappið hafi ekki splundrað heiminum og umhverfisvandi kæft lífríki jarðarinnar.

Frá nýsköpun til valdatöku

Í nokkra áratugi var Silikondalur vettvangur fyrir nýsköpun og tækniþróun. Fyrirtækin í dalnum voru drifkraftur hagvaxtar og bjuggu til verkfæri sem auðvelduðu margt í atvinnulífi og heimilislífi fólks. En hlutverk tæknifyrirtækjanna hefur breyst. Þau eru ekki lengur aðallega birgjar vöru og þjónustu. Þau hafa orðið áhrifavaldar og beinir aðilar að því að móta gerð og virkni samfélaga, hvernig við tölum saman, hvað við vitum og hverju við trúum. Tæknirisarnir eru ekki lengur þjónar stjórnvalda og fyrirtækja heldur beinir aðilar í valdabröltinu. Þeir eru stórveldi sem hafa áhrif á samskipti, viðskipti, öryggi og stjórnmál. Tækni þeirra er notuð á flestum sviðum mannlífs, frá skipulagningu mótmæla til skipulags og stjórnar stríða.

Tækni og þjóðarhagsmunir

Tæknifyrirtæki eru í vaxandi mæli samofin stefnu og aðgerðum ríkisvalds. Þegar Donald Trump varð forseti á seinna kjörtímabilinu fékk lykilfólk í tæknigeiranum aukin áhrif innan stjórnsýslunnar. Bandaríkjastjórn notar tæknifyrirtæki sem verkfæri í utanríkisstefnu sinni og fyrirtækin laga sig að ríkisforsendunum til að tryggja markaðsstöðu sína. Hið sama má sjá í sjórnarháttum stórvelda Asíu. Í valdabaráttu Bandaríkjanna og Kína ráða ekki Sameinuðu þjóðirnar eða NATO mestu heldur fyrirtæki eins og OpenAI, TikTok, Nvidia, Palantir og Huawei. Þessar tæknisamsteypur stjórna þróun gervigreindar, örflöguframleiðslu, gagnasöfnum og stafrænum innviðum.

Tæknilegt valdajafnvægi breytist

Donald Trump aðhyllist þjóðernishyggju og notar tæknifyrirtæki til að veikja fjölþjóðasamstarf. Aðferðir stjórnsýslunnar vestra eru ruddalegar. Ef Evrópusambandið vogar sér að setja reglur sem gætu heft bandarísk stórfyrirtæki er hart brugðist við í Washington, hótað að Bandaríkinn gangi úr Nató eða að evrópskir embættismenn verði sviptir vegabréfaáritunum. Tæknimál og stjórnmál eru samofin.

 Hver verður þróunin? Auðvitað skiptir máli enn hverjir stjóra í Kína, Indlandi, Evrópu og Bandaríkjunum. En væntanlega mun skipta litlu máli eftir hundrað ár hver verður bóndinn í Hvíta húsinu. Völd munu færast frá þingum og ráðhúsum til tæknifyrirtækja í einkaeigu. Þróunarhraði gervigreindar er slíkur að jafnvel heimsveldi halda ekki í við kappið og hraðann. Google, DeepMind og Anthropic setja sínar eigin siðareglur og öryggisviðmið og óháð lýðræðislegu aðhaldi. Kerfiskreppa lýðræðisins er að ríki eru getuskert eða jafnvel ófær um að setja reglur um tækniþróun. Afleiðingin verður að tæknigeirinn fær frjálsar hendur og sem næst algert frelsi í æðisgengnu kapplaupi tæknirisanna.

Þögul völd

„Þekktu sjálfan þig“ var slagorð véfréttarinnar fornu í Delfí. En nú er staðan sú að tæknirisarnir vita meira um okkur en við sjálf. „Við þekkjum þig“ gætu þeir smellt á skjáinn á símunum okkar. Meðan við gruflum og efumst spá matskerfi tæknigeirans fyrir um hegðun okkar og móta hana líka. Við erum smátt og smátt rænd sjálfi okkar og frelsi. Frelsi og val hundruða og þúsunda milljóna færist frá lýðræðisferlum og kjörnum stofnunum til fyrirtækja sem lúta ekki lýðræði eða eftirliti annarra en eigenda. Þegar Meta ákveður hvað telst pólitísk auglýsing eða X fínstillir sýnileika er það ekki bara innanbúðarmál fyrirtækjanna heldur varðar tjáningarfrelsi og leikreglur lýðræðis. Lýðræði er tímafrekt og góðir hlutir gerast hægt í samtali og samvirkni samfélaga. En tæknifyrirtækin eru á allt annarri hraðbraut en talandi fólk og rabbandi hópar á málfundi. Tæknifyrirtækin standa engin skil gagnvart fólki og kjósendum heldur aðeins þeim sem eiga peningana. Svo eru þessi fyrirtæki á kafi í umdeildum afskiptum af átökum, stríðum og hernaði.  

Hverjir stjórna?

Aðgreining ríkja og einkageira verður æ óljósari. Í Kína eru þau hverfandi, í Bandaríkjunum formlega aðskilinn en þó flæðir á milli um alls konar göt. Samskipti þjóða varðar síður samninga og vinsamleg samskipti ríkja heldur fremur aðgang að gagnaverum, tölvutækni, orku og gervigreindarvinnslu. Tæknifyrirtæki móta ramma sem samfélög starfa innnan en stjórnmálamenn bregðast aðallega við þróun í stað þess að stýra henni. Án lýðræðislegs aðhalds mun tækni móta stjórnmálin en ekki öfugt. Kjarnaspurningin er því ekki hvort 21. öldin verði öld tæknirisanna heldur hvort lýðræðisríki nái að endurheimta stjórn áður en völd fólks hafa tapast endanlega. 

Ísland og ný tækni­stefna

Fyrir örríki eins og Ísland er staðan krefjandi en líka áhugaverð. Við erum háð tækni sem er þróuð og stjórnað af einhverjum óþekktum eigendum. Það hefur áhrif á öryggi, efnahag og lýðræðislegt sjálfstæði. Að vilja bara vera tæknilega hlutlaus er ekki lengur raunhæfur kostur. Það jafngildir að hafa engin áhrif á þróunina og vera alger þiggjandi. Íslensk utanríkis- og innanríkisstefna þarf að gera tæknimál að meginmáli; að byggja upp sérþekkingu á gervigreind, netöryggi og stafrænum innviðum alls samfélagsins; að skilja hvernig val á tækni varðar og hefur áhrif á þjóðaröryggi og efla samvinnu við trausta samstarfsaðila. Við verðum að byggja upp og tryggja sjálstætt öryggi orkukerfa okkar og vistun upplýsinga s.s. um heilsu, fjármál og annað sem leynt skal fara. Varnirnar verða að vera raunverulegar og ekki útvistað í góðri trú um að einhver tæknifyrirtæki muni hegða sér þokkalega og verða traustsins verð. Þegar við færum heilbrigðiskerfi, varnakerfi og stjórnsýslu yfir á bandarísk eða kínversk vinnslunet, útvistum við ekki aðeins tækni heldur líka trausti. Í heimi þar sem traust er söluvara er gagnavarsla beint öryggismál. Hugsum til framtíðar og eflum öryggi Íslendinga.

Skoðunargrein, Vísir, 20. nóvember,, 2025.