Greinasafn fyrir merki: laun

Klemma fræðimanna

Ég var hugsi yfir þögn íslenskra fræðimanna fyrir og eftir Hrunið 2008. Á fjölsóttum umræðu- og uppgjörsfundi í Háskóla Íslands um hrunið spurði ég hvers vegna svo fáir háskólamenn hefðu varað við og af hverju akademíska fræðasamfélagið hefði þagað að mestu. Enginn vildi eða treysti sér til að svara. Fundarstjórinn bað um fleiri spurningar.

Eftir fundinn var mér bent á, að háskólakennarar hefðu vilja en takmarkaðan hag af því að miðla fræðum sínum út fyrir fræðasamfélagið. Slík afskipti gætu jafnvel skaðað möguleika þeirra á að fá vel launuð verkefni og aukastörf.

Ég er enn hugsi um skyldur, hlutverk og möguleika akademíunnar og nú í aðdraganda kosninga um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Af hverju eru svo fáir háskólamenn sem miðla þekkingu sem gæti skýrt valkostina?

Í lýðræðissamfélagi ætti slík miðlun í opinbera rýminu að vera eitt mikilvægasta hlutverk fræðimanna. Sérfræðiþekking þeirra, til dæmis á lögum, hagfræði, stjórnmálum, sögu, umhverfismálum og alþjóðasamskiptum, getur skipt miklu – jafnvel mestu – þegar tekist er á um stórmál. En hvatar akademíska kerfisins eru ekki í samræmi við þarfir samfélaga fólks og þjóða.

Dagblaðsgrein eða þátttaka í pólitískri umræðu gefur fræðimanni sjaldan beinan fjárhagslegan ávinning þótt slíkt geti gefið stig í matskerfi háskólanna. Ritrýndar greinar, rannsóknarstyrkir og fræðileg útgáfa vega mun þyngra í mati háskóla og starfsferli. Það getur tekið álíka langan tíma að skrifa vandaða grein fyrir almenning og að semja fræðigrein sem veitir meiri akademíska umbun. Fræðimaðurinn lendir því í klemmu að velja milli greinar sem kerfið verðlaunar og greinar fyrir almenning sem veitir litla umbun og getur jafnvel kallað yfir hann skammir, reiði og slaufun.

Klemman er fjölþætt. Margir fræðimenn vinna eða vilja vinna verkefni fyrir ríki, sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki. Greitt er fyrir skýrslur, úttektir, mat og sérfræðiráðgjöf. En sá sem skrifar fræðslugrein í umdeildu máli getur óttast að verða talinn of tengdur öðrum málstaðnum til að fá verkefni. Þá vaknar sjálfsritskoðun til að forðast félagslega eða pólitíska geislavirkni. Mun öruggara er að skrifa fræðigrein fyrir fagtímarit en að blanda sér í eldfima samfélagsumræðu. 

Klemman varðar bæði akademíuna og samfélagið og hún hefur siðferðilega vídd. Samfélag fólks hefur mesta þörf fyrir fræðimenn þegar mál eru flókin, upplýsingar misvísandi og hagsmunir miklir. En þá þykir flestum óþægilegt að beita sér. Fræðimenn forðast götubardaga.

Vandinn varðar ekki aðeins launakerfi háskóla heldur styrk og heilsu lýðræðisins. Háskólar eru ekki aðeins þekkingarverksmiðjur fyrir aðra fræðimenn. Þeir gegna líka þeim samfélagslegu hlutverkum að skýra, leiðrétta, greina og gera almenningi kleift að taka upplýstar ákvarðanir.

Í upplýsingaóreiðu samtímans er ástæða til að endurskoða umbunarkerfi háskólanna. Oft var þörf, nú er nauðsyn og lífið liggur við í framtíð. Enginn hagur er af kerfi sem ýtir undir sjálfsþöggun fræðimanna. Sem samfélag höfum við þvert á móti brýna þörf fyrir að fræðin flæði um allar æðar lýðræðissamfélagsins.

Myndirnar tók ég í og við Háskólatorg HÍ. Listaverkið stórkostlega er inni-úti-verk Finns Arnar Arnarssonar. Mér hefur alltaf þótt við hæfi að Finnur notaði gæsir, þá vel ratandi, klóku fugla. Gæsir voru tákn heilags anda Guðs í norrænni og keltneskri kristni til forna!