Greinasafn fyrir merki: Kistefos Træsliberi

Kusama og doppulistin

Yayoi Kusama er látin, 97 ára að aldri. Mér þótti list hennar sértæk og hrífandi. Agaði en skrautlegi einfaldleiki listar hennar höfðaði til okkar með slíkan smekk. Og því sér maður víða verk hennar í norrænu samhengi.

Í Louisianasafninu norðan við Kaupmannahöfn er t.d. sálarsýning hennar orðin fastasýning. Ég skoðaði hana í vor og fór gjarnan á sýningar hennar ef þær voru í borgum sem ég heimsótti.

Kusama var sérstæð og lenti á flótta í lífinu. Hún átti við ýmsa kvilla að stríða en skoðaði þá, vann úr og úthverfði í sterka og áhrifaríka list. Hún umbreytti eigin kvíða í doppur, endurtekningar og speglaðan óendanleika. Listiðjan varð henni skjól og lífskraftur. Hún algilti eiginlega hið persónulega og nýtti þráhyggju sína til fegurðargjörnina.

Guð geymi hana í flæðandi doppum óendanleikans. Blessuð veri minning hennar. 

Verkið er stærsta verk Kusama á Norðurlöndum, Shine of Life, frá 2019. Það er staðsett í vatni við gömlu sögunarmylluna í Kistefos í Jevnaker. Þar er stórkostlegt myndlistarsafn, ekki síst skúlptúrasafn, sem Kristín systir kynnti okkur og ástæða er til að skoða.