Greinasafn fyrir merki: Jonas Gahr Störe

Kristrún Frostadóttir, Jonas Gahr Störe og Guðrún Hafsteinsdóttir

Mig dreymdi draum aðfaranótt kosningadags 16. maí. Hann var skýr og ég mundi hann vel þegar ég rumskaði.

Mér fannst Kristrún Frostadóttir, Jonas Gahr Störe, norski forsætisráðherrann, og Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, vera í heimsókn hjá mér. Jonas virtist pirraður og beindi orðum sínum til Kristrúnar. Hann skammaði hana og jók í og varð að lokum fjúkandi reiður. Kristrún var æ niðurlútari en varðist ekki og reyndi engin undanbrögð. Guðrún sat hjá, undrandi á norska regluverðinum og skömmum hans yfir strategískum mistökum og mislestri Samfylkingarinnar á pólitík og samfélagi. Guðrún horði á mig og deplaði auga. Ég gerði mér grein fyrir að ég yrði að leysa þessa pínlegu yfirhalningu á eigin heimili og færa þeim veitingar. Ég flýtti mér í kokkhúsið og náði í kaffi í afskapalega fallegum bollum og kökur. Í draumnum var bolli Kristrúnar með glerfæti og í mynd ballettdansara. Sólskinið glitraði í glerinu þegar ég bar henni bollann. Ég man að ég dáðist líka í draumnum að hve kökurnar voru skrautlegar þegar ég bar þær fram. Guðrún tók veitingunum hið besta, sá norski róaðist lítillega og Kristrún var augljóslega fegin að losna úr prísundinni. Hún skildi að allt var rétt sem sagt var. Jonas norski hafði metið frammistöðu kollega síns sem fall á pólitíska prófinu. Þau þrjú nutu síðan veitinga og fóru með blessun úr mínu koti og fram hjá Gleðigjafanum, sem er eins og húsvörður í forstofunni heima.

Ég sagði konu minni á koddanum drauminn en við hvorki réðum né lögðum meira í hann en skemmtiefni næturdrauma. En kosningaúrslitin skýrðu drauminn. Í ljósi þeirra varð hann sjálfráðinn. Spurt hefur verið hvort ég sé á gamals aldri farinn að dreyma fyrir daglátum eða var kannski lánleysi Samfylkingar augljóst fyrirfram, tæming vinstrisins og aðvífandi hægri sveifla á höfuborgarsvæðinu. Ég hlakka til framhaldsseríu næturvinnunnar eftir þennan fyrsta þátt.  

Ég er alveg til í að bjóða þremenningunum í heimsókn aftur því ég hef mætur á þeim öllum. Ég mun vanda undirbúning fundarins. Guðrún og Kristrún eru líka velkomnar Jonaslausar.

Meðfylgjandi mynd af Gleðigjafa Línu Rutar í forstofu okkar. Hann nýtur geisla morgunsólar þegar sólar nýtur og er ónæmur fyrir pólitískum sviptivindum.