Greinasafn fyrir merki: Jóna G. Kolbrúnardóttir

Krossuð veröld Passíusálmanna

Krossferli’ að fylgja þínum
fýsir mig, Jesú kær,
væg þú veikleika mínum
þó verði’ eg álengdar fjær.
Þá trú og þol vill þrotna,
þrengir að neyðin vönd,
reis þú við reyrinn brotna
og rétt mér þína hönd.
Krossferill dagsins – ganga að heiman á föstudeginum langa, staldrað við HÍ, síðan í gegnum Hljómskálagarðinn og upp Njarðargötu og í Hallgrímskirkju. Nutum frábærs og fjölbreytilegs upplestrar átta lesara. Það var gott að staldra lengi við í þétt setinni kirkjunni, innlifast hægum andardrætti sálmanna, leyfa dýptaríhugun þeirra að seitla inn í sálina – og njóta undursins. Við svona langsetu og langíhugun skynjaði ég það sem ég hef ekki séð eða greint fyrr í Passíusálmum, hvernig Hallgrímur teiknar hægt en ákveðið, aftur og aftur kross í skáldskapnum. Sú teikning er í efnistökunum og stefjavinnslunni. Uppstefna sálmanna er skýr, þrá sálar, samtalið við Guð, lofsöngurinn. Niðurstrikið er til líkamans og náttúrunnar. Útvíddin er til annarra, lárétt útsending okkar manna í siðferði og ábyrgð. Sálartalið sem er djúptaktur sálmanna er til dýptar – þar er enn eitt þvertré krossins. Allar þessar víddir teiknuðu mér kross, á bak og brjóst, upp og niður, út og suður, inn og út, upp og niður. Fáninn á Alþingishúsinu – sáum við á heimleið – íhugaði sálarsönginn líka – enda krossaði Pjetur biskup húsið þegar hornsteinn þess var lagður á 19. öldinni og hafði yfir blessunarorðin – sem er líka kross. Öll veröldin er krossuð, heilög, góð, blessuð. Og lífsferðin er krossuð.
Lesarar: Bergsveinn Birgisson, Brynhildur Björnsdóttir, Guðrún Hlíðdal Gunnarsdóttir, Roberto Luigi Pagani, Sigurður Skúlason, Svanhildur Óskarsdóttir, Þorsteinn Davíðsson og Steinunn Jóhannesdóttir sem jafnframt hafði umsjón með lestrinum. Flytjendur tónlistar: Björn Steinar Sólbergsson, Jóna G. Kolbrúnardóttir og Steinar Logi Helgason. Takk fyrir mig og okkur öll.
Föstudagurinn langi 2026.