Greinasafn fyrir merki: jarðakaup

Ísland ekki til sölu

Viljum við að fáir eigi Ísland? Skattaflóttamaðurinn Ratcliffe, sem ekki virðir umhverfisviðmið í einkalífi sínu, hefur keypt fjölda jarða og risaflæmi á norð-austurlandi. Fjársterkir aðilar vilja kaupa stór landsvæði. En munum, að land er ekki venjuleg markaðsvara eins og hús eða íbúð. Land er forsenda framtíðar þjóðarinnar.

Íslensk löggjöf um jarðeignir hefur breyst síðustu áratugina. Jarðalögin frá 1976 settu ýmsar skorður við kaupum og ráðstöfun bújarða. Árið 2004 voru samþykkt ný jarðalög í ráðherratíð Guðna Ágústssonar. Með þeim var slakað verulega á eldri takmörkunum og aukið frelsi landeigenda til sölu jarða. Markaðssjónarmið fengu aukið vægi og Ratcliffe getur þakkað Guðna.

EES-samningurinn tryggir frjálst flæði fjármagns en Ísland má þó setja almennar, málefnalegar skorður við jarðakaupum. Árið 2020 voru jarðalögin hert að nýju, meðal annars vegna áhyggna af samþjöppun eignarhalds. En duga þær skorður?

Hvað gerist þegar einstaklingar með nánast ótakmarkað fjármagn geta eignast víðáttumikil landsvæði, sbr. kaup Jim Ratcliffe? Land sem nú þykir lítils virði gæti orðið verðmætara með hækkandi hita, breyttu gróðurfari og ekki síst aukinni vatnskreppu heimsins. Framtíðargildi íslenskrar náttúru verður ekki eingöngu metið í verði fasteigna.

Eignarréttur er mikilvægur en honum tengist samfélagsleg ábyrgð. Löggjafinn og raunar við öll verðum að tryggja gagnsæi eignarhalds, takmarka óhóflega samþjöppun og vernda almannahagsmuni. Eignarréttur og þjóðarhagsmunir eiga alltaf að fléttast saman.

Við eigum ekki Ísland aðeins fyrir okkur sjálf, heldur varðveitum það fyrir komandi kynslóðir. Ísland er ekki til sölu því við eigum að skila vel af okkur.