Greinasafn fyrir merki: harmavein

Alone again (naturally) – harmljóð 1972

Í angist hefur fólk um aldir hrópað, kramið af missi, sorg, hjálparleysi og líka guðleysi. Söngvaskáld aldanna hafa æpt og í Biblíunni eru líka harmljóð, raunar rosaleg.

Sonur minn benti mér á gamlan slagara Gilbert O’Sullivan sem ég söng með jafnöldrum mínum á sínum tíma. Lagið er hressilegt, jaðrar við að vera stuðlag, og ég áttaði mig ekki fyrr en á gamals aldri hve dapurlegur textinn er.

Lagið Alone Again (naturally) var gefið út á menntaskólaárum mínum, árið 1972, og varð eitt vinsælasta lag þess árs. Melódían seitlar auðveldlega inn í sálina og festist, en textinn tjáir einmanaleika, missi, trúarefasemdir og dauða. Laglínan heillar en djúptónninn er kvein manns sem hefur misst.

Sögumaðurinn stendur í kirkju en konuefnið hans svíkur hann á brúðkaupsdeginum. Von hans um ást og hamingju bregst. Hann sér enga leið úr örvæntingunni. Niðurlægingin er svo sár að hann íhugar að farga sér. Einn á ný – eðlilegt og óumflýjanlegt hlutskipti hans?

Síðan snýr hann sér að Guði og spyr hvers vegna þjáning sé leyfð? Hvers vegna grípur Guð ekki inn í þegar lífið hrynur? Spurningarnar minna á vein Jobs, sem missti allt en neitaði að sætta sig við yfirborðslegar klisjuskýringar vinanna. Þær minna einnig á hróp sálmaskáldsins: „Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig?“ Það óp endurómaði á krossinum. Þessi hróp eru sjaldnast tjáning guðleysis heldur kraminnar sálar og oft trúar sem krefst svara. Hvernig er hægt að treysta Guði sem þegir þegar mest á reynir?

Í lok söngsins deyr faðir sögumannsins og móðirin líka. Þá er hann einn á ný. Dauðinn hefur slitið mikilvægustu tengsl lífsins og söngvarinn er sem Job í nauðum, hefur misst allt. Við erum sköpuð til samfélags, ástar og nándar en vitum að jarðnesk tengsl eru forgengileg. Enginn getur elskað án þess að eiga á hættu að missa. Enginn getur lifað dauðalaust.

Varðandi missi og sorgarefnin veitir O’Sullivan engin auðveld svör. Hann lofar engri huggun og reynir ekki að réttlæta þjáningu. Í texta hans er sorg tjáð og harmakvein þarf að hljóma. Með því að syngja um einsemd snerti O’Sullivan kviku milljóna manna sem þekkja sorg. Einsemd vex í samfélagi okkar, virðum hana og heyrum harmhljóðin þegar fólk tjáir eða syngur þau jafnvel. Takk Ísak fyrir að benda mér á Alone again (naturally). Það er Jobsöngur anno 1972. 

In a little while from now
If I’m not feeling any less sour
I promise myself to treat myself
And visit a nearby tower
And climbing to the top
Will throw myself off
In an effort to
Make it clear to whoever
wants to know what it’s like when you’re shattered

Left standing in the lurch at a church
Where people saying, My God, that’s tough
She stood him up
No point in us remaining
We may as well go home
As I did on my own
Alone again, naturally

To think that only yesterday
I was cheerful, bright and gay
Looking forward to who wouldn’t do
The role I was about to play

But as if to knock me down
Reality came around
And without so much as a mere touch
Cut me into little pieces

Leaving me to doubt
Talk about, God in His mercy
Oh, if he really does exist
Why did he desert me
In my hour of need
I truly am indeed
Alone again, naturally

It seems to me that
There are more hearts broken in the world
That can’t be mended
Left unattended
What do we do?
What do we do?

Alone again, naturally

Looking back over the years
And whatever else that appears
I remember I cried when my father died
Never wishing to hide the tears
And at sixty-five years old
My mother, God rest her soul
Couldn’t understand why the only man
She had ever loved, had been taken

Leaving her to start
With a heart so badly broken
Despite encouragement from me
No words were ever spoken
And when she passed away
I cried and cried all day
Alone again, naturally
Alone again, naturally