Greinasafn fyrir merki: graffiti

Er Belfast borg friðar?

Elskulegt starfsfólk í ferðamiðstöðinni í Cathedral Quarter mælti með Eugene Leneghan. Hann væri staðkunnugur leiðsögumaður. Við hittum hann fyrir utan Titanic-gestastofuna á gamla skipasmíðasvæðinu í Belfast. Feimnislegt bros hans heillaði þegar hann spurði um nöfn okkar og reyndi að bera þau fram og muna. Við settumst inn í Audi-bílinn hans og svo hófst ein eftirminnilegasta leigubílaferð sem við höfum farið.

„Ég var níu ára 1972 þegar lið kom heim til mín og sagði okkur að fara. Það var ekki hótun heldur yfirlýsing um að ef við færum ekki yrði heimili okkar brennt. Við settum húsið okkar á sölu og fórum.“ Þannig hóf Eugene ferðina, sagði sögu átaka síðustu áratuga í Belfast, stríð, vonir, tilfinningar fólks, vopnaðan frið en grunnan. Svo sagði hann okkur að róstutíminn hefði ekki verið trúarátök heldur átök um pólitík, hefðir og stefnu í menningu og þróun Írlands. Á ökuferðinni rakti Eugene snilldarlega sögu fortíðar og nútíðar. Við flengdumst milli sautjándu aldar og þeirrar tuggustu, skildum að allt á sér sögulegar rætur og gamlir atburðir hafa leitt til afdrifarírkar sögu.

Við stoppuðum við krár sem kaþólikkar höfðu safnast í og mótmælendur höfðu skotið á eða sprengt. Við ókum um hverfi mótmælenda, sáum fyrir okkur göngur þeirra og Ian Paisly efna til ófriðar. Við sáum hverfi kaþólikka sem bjuggust til varna, sáum myndir af börnunum og fólkinu sem hafði verið myrt og flest voru saklausir borgarar sem höfðu verið á réttum stað en á röngum tíma. Eugene sagði okkur átakasöguna, sýndi okkur myndir af skosku hermönnunum sem voru að skemmta sér en voru skotnir. Hann fór með okkur að múrunum og hliðunum, sem enn er lokað á kvöldin, að 30 km. girðingunum, sýndi okkur húsin sem enn eru með stálvörnum og girðingum til að ekki sé hægt að kveikja í þeim með molotovkokteilum.

Er Belfast í bata eftir róstur og átök fortíðar? Já, friður ríkir að mestu og fólk er ekki skotið. En friðurinn er brothættur, mun grynnri en við áttum von á. Þrátt fyrir að flestir foreldrar vilji að skólar séu sameinaðir, eru  aðeins 8% barna í Norður Írlandi ssem ganga í skóla fyrir bæði kaþólikka og prótestanta. Mörg hverfi eru enn víggirt og mörgum hliðum er enn lokað á kvöldin svo enginn fari um og valdi skaða eða ófriði. Veggjalistin í borginni kom okkur mjög á óvart. Hún er ríkuleg, haldið vel við og nýjar myndir eru gerðar í samræmi við stjórnmálaþróun heimsins. Belfast er hluti heims. Stríð heimsins eru hliðstæður Belfast-troubles. Því er fáni Ísraels málaður á vegg í hverfi mótmælenda og Gasa er hverfi kaþólikka. Það er ástæða til að skoða þessar myndir heimsstjórnmála í borgarhverfum Belfast. Þessi veggjalist er heillandi en líka átakanleg.

Eugene ók upp að lestarstöðinni í Belfast og kvaddi okkur. Þessi fyrrverandi landafræðikennari hafði leitt okkur inn í rosalega og átakanlega sögu. Hann er fulltrúi fólks sem ræktar frið óháð hverfum og flokkunum. Við þurftum tveggja tíma ferðina suður til Dublin til að jafna okkur á rosanum, harmi og hryllingi stríðs.

Belfast er heillandi. Titanic-svæðið er glæsilegt og sagan er þykk. Það eru margir góðir leiðsögumenn í borginni en við vorum sérlega heppin. Við mælum með Eugene Leneghan og leiðsögufyrirtæki hans Belfast Saints and Sinners Tours: https://www.belfastsaintsandsinnerstours.com

Sími hans er +44 7870980807