Greinasafn fyrir merki: góða nótt

Góða nótt

Ég tók fram doðrant sem ég hafði ekki kíkt í lengi til að skoða tilvitnun. Við flettingu gægðist blað fram. Ég skoðaði það, sá varalita-kossa og þurrkuð blóm. Minningarnar þustu upp í meðvitundina. Ég var vanur að lesa sögur fyrir börnin mín áður en þau fóru að sofa. Þetta voru inntaksríkar kyrrðarstundir. Þau hlustuðu spennt á sögurnar, lærðu ný orð, innlifuðust merkingu, greindu galdur sagna og hvernig hugur spinnur úr skilningsvefinn. Þau kúrðu undir hlýjum sængum, hlustuðu á litríkar sögur en innlifuðust líka friði kvölds og stillu næturinnar. Svo báðum við kvöldbænirnar, sem var eiginlegur endir dagsins, tenging við himininn, brú inn í nóttina. Þegar bæn lauk endaði dagurinn og nóttin byrjaði. Amenið var eins hljómandi skil í tíma og vitund. Síðan andaði ég með þeim, beið svefnhljóðanna og leyfði elskunni að hríslast um mig og yfir þau. Þetta voru yndislegar stundir og dýrmætar samverur, sem ég held að hafi gefið þeim meira en bara málvitund og traust í sál. Eitt kvöldið fór ég burtu og þegar ég kom til baka beið miði. Ég sá fyrir mér kátínuna í augum þeirra þegar þau völdu varaliti og báru hvert á annað. Svo var kysst og blaðið brennt! Pabbalífið var stundum slítandi en ekki hefði ég viljað fara á mis við það. Allt hitt yfirskyggir. Kvöldkossinn kemur enn og aftur með þessum hugvitssamlega og elskuríka kossmiða. Takk fyrir og góða nótt.