Greinasafn fyrir merki: endurnýting

Ábyrg fegurðarsókn og nýja byggingarlistin

Ég er múrarasonur og foreldra, sem var annt um að byggingar væru vandaðar, byggingarefnin væru góð og heilsusamleg og fólk gengi um af virðingu við náttúruna. Pabbi talaði um alkalískemmdir löngu áður en þær voru almennt viðurkenndar í byggingargeiranum. Hann harmaði peningasókn kollega sinna, sem meðvitað fóru á svig við varúðarreglur til að græða. Í frágangi passaði hann, að loftun væri góð til að varna myglubölinu, sem hann ræddi um. Hann var í störfum trúr stefnu sinni og afar nákvæmur. Arfur pabba og mömmu var, að búa vel en sóa ekki. Þessi ábyrga fegurðarsókn kemur fram í nýjum áherslum í arkitektúr, sem ég fagna. Og byggingabransinn þarf að heyra. 

Frakkastígur 1 fékk hönnunarverðlaun 2026 fyrir arkitektúr. Húsið er vel hannað og líka ljómandi dæmi um ábyrga endurnotkun efnis. Í klæðingu hússins eru vegrið af þjóðvegum landsins sem höfðu verið tekin úr notkun, gler sem tekið var úr Smáratorgsturninum vegna viðgerða og grjót úr grunni hússins. Að baki þessari nýju efnisendurnýjun er Arnhildur Pálmadóttir, arkitekt, hugmyndaríkur frumkvöðull um sjálfbæra mannvirkjagerð og endurnýtingu byggingarefna. Hún er stofnandi s.ap arkitekta. Í ítarlegu viðtali um áherslur og breytingar í húsbyggingamálum okkar við umhverfistímaritið Umskipti bendir Arnhildur á nauðsynlegar breytingar byggingareglugerðar til sparnaðar og bóta: 

„Það er nú gerð krafa um að kolefnisspor nýrra bygginga verði reiknað út við hönnun hússins (svokallaðar lífsferilsgreiningar) en í reynd má kolefnissporið vera eins hátt og hönnuðinum sýnist án þess að það hafi nokkrar afleiðingar. Ég myndi vilja sjá regluverk sem tryggir að byggingar sem uppfylla ákveðnar kröfur og haldast undir ákveðnu losunarþaki fái til dæmis afslátt af byggingargjöldum, eða öfugt, að hús sem fara yfir ákveðin mörk fái á sig einhvers konar álag. Frekar en að búa til einkarekin vottunarkerfi mætti láta einfaldan gátlista fylgja með byggingareglugerðinni. Það er svolítið yfirborðsklór í þessum umhverfisvottunum sem við erum með núna. Þær eru bæði dýrar og ógagnsæjar og taka ekki endilega á rót vandans. Sama með niðurrif og endurnýtingu eldri bygginga, þar vantar líka betra regluverk.“ „Ef við hegðum okkur ekki betur í umhverfismálum núna og fjárfestum í þeim breytingum sem þurfa að verða þá mun falla á okkur gríðarlegur kostnaður tengdur loftslagsbreytingum á næstu árum, bæði vegna þess að við erum ekki að standa við alþjóðlegar skuldbindingar okkar og svo líka vegna breytinga á náttúru sem hafa áhrif á hið manngerða umhverfi og munu kosta okkur mikið.“ „Við sem arkitektar þurfum líka að hugsa út fyrir kassann og benda á ýmsan ávinning af því að gera hlutina öðruvísi. Ég hef til dæmis lagt áherslu á að hús þurfi að hafa sögu og sál og hús sem eru endurnýtt eða byggð úr endurnýttu efni öðlast sjálfkrafa slíka sál. Þær segja sögu sem nýjar byggingar geta ekki sagt.“

Til að sporna við einfeldningslegri peningahugsun er þarft að breyta eins og Arnhildur leggur til. Óstjórnleg sóun í byggingageiranum er óábyrg. Fjöldi húsa eru að óþörfu brotin niður í stað þess að nýta þau og hanna umhverfi þeirra af hugkvæmni. Gerum betur, notum með ábyrgð, spörum en hugsum stórt og búum vel. Lof sé Arnhildi og nýju kynslóð arkitektanna sem þora.