Kirkjugarðar hafa um aldir verið meira en greftrunarstaðir hinna látnu. Þeir eru helgir staðir, minningarsvæði og tákn byggðarsögu. Þegar byggð breytist, kirkjur eru lagðar niður eða nýir kirkjugarðar hafa verið teknir í notkun spyr fólk gjarnan hvað eigi að gera við gamla grafreitinn. Nýtingarþróunin á Íslandi hefur verið svipuð og annars staðar í vesturhluta Evrópu.
Saga Víkurgarðs í Reykjavík er gott dæmi um þróun og breytingar. Hann var við hornið Aðalstræti og Kirkjustræti, á móti Herkastalanum. Þar stóð kirkja frá miðöldum og kirkjugarðurinn í kringum hana var notaður í margar aldir. Þegar Hólavallagarður, kirkjugarðurinn við Suðurgötu, var tekinn í notkun árið 1838 var að mestu hætt að grafa í Víkurgarð. Árið 1883 fékk hinn grænfingraði Georg Schierbeck, landlæknir, að nota gamla garðinn sem ræktunarsvæði. Hann gróðursetti tré, sem við njótum enn, runna og ræktaði grænmeti. Síðar varð svæðið almenningsgarður og er nú torg með gróðursvæðum. Jarðneskar leifar látinna fyrri alda Reykvíkinga eru enn undir yfirborðinu.
Á Íslandi er mikill fjöldi aflagra kirkjugarða við gömul kirkjustæði og einnig heimagrafreitir. Sumir þessara garða voru sléttaðir og urðu hluti túna þegar kirkjur voru aflagðar eða fluttar. Aðrir gleymdust. Þegar framkvæmdir hófust vegna byggingar Áburðarverksmiðju í Gufunesi komu mannabein í ljós. Þar hafði verið grafreitur sem hafði týnst í þoku tímans. Grafreiturinn í Gufunesi er dæmi um slíka gleymsku.
Núgildandi lög á Íslandi um kirkjugarða og grafreiti eru skýr. Niðurlagður kirkjugarður er áfram friðhelgur og telst til fornleifa. Sem sé, grafreit á að virða, nýta eða umgangast af ítrustu virðingu. Eftir ákveðinn tíma má afhenda slíkt svæði sveitarfélagi sem almenningsgarð eða slétta yfir það. Þá skal merkja staðinn varanlega. Jarðrask og mannvirkjagerð á aflögðum grafreitum eru óheimil nema með sérstakri undanþágu.
Svipuð verndarhugsun kemur fram löggjöf á Norðurlöndum. Í Noregi verður niðurlagður grafreitur að vera friðaður í að minnsta kosti 40 ár frá síðustu greftrun. En grafarhelgi einstakra grafa nýtur þó síðri verndar í Noregi en á Íslandi. Ef síðar á að byggja á reitnum eða leggja yfir hann fast yfirborð, s.s. steypu, malbik eða mannvirki, þarf fyrst að rannsaka svæðið og grafa það upp og færa þær líkamsleifar sem finnast. Í Svíþjóð og Danmörk er einnig gert ráð fyrir tímabundnum grafarrétti fremur en eilífum óumbreytanleika. Grafir má því að ákveðnum tíma liðnum endurnýta, þótt sögulega merkir grafreitir og minnismerki njóti sérstakrar verndar.
Á Bretlandseyjum varð grafreitavandinn knýjandi þegar borgir stækkuðu á 18. og 19. öld. Kirkjugarðar fylltust og mörgum þeirra var síðan lokað. Með löggjöfinni Disused Burial Grounds Act 1884 var almennt bannað að byggja á aflögðum grafreitum. Síðar voru reglur þó rýmkaðar og sett voru skilyrði um meðferð líkamsleifa og minnismerkja. Margir gamlir og fullgrafnir kirkjugarðar urðu að almenningsgörðum og grænum svæðum. Í London er t.d. fjöldi slíkra svæða.
Í Frakklandi og víðar á meginlandi Evrópu er algengast að grafarréttur sé tímabundinn. Sveitarfélög geta tekið yfir gamlar, yfirgefnar grafir eftir lögbundið ferli og nýtt grafstæðin. Í Frakklandi má til dæmis hefja slíkt ferli þegar ákveðinn tími er liðinn frá síðustu greftrun.
Meginþróunin er með líkum hætti í flestum löndum í vesturhluta Evrópu. Grafreitur hættir ekki að vera minningarsvæði þótt greftrun fólks í garðinum sé hætt. Hann getur orðið garður, torg eða annað opinbert rými, en lög og menningarvernd hafa smám saman styrkt þá hugsun að jarðneskar leifar og saga staðarins eigi áfram rétt á virðingu og þar með einhverri friðun.
Með fjölgun bálfara í samtíma okkar er farið að nýta kirkjugarðana betur. Þétting borga, mannfjölgun og stærri íbúðir og hús pr. íbúa hefur hækkað verð á lóðum og hefur einnig orðið til betri nýtingar kirkjugarða. Bálförum fer mjög fjölgandi og hægt að nýta gömlu fjölskyldugrafirnar vel. Hægt er að setja allt að 8 duftker í hverja kistugröf því duftker er jarðsett á 1 meters dýpi. Með fjölgun bálfara eru fjölskyldugrafreitir endurnýttir. Þeir eru að verða fjöldagrafreitir heils ættboga. Það er verulega gott, hagnýtt og líka blessunarríkt að geta krossað yfir legstaði margra ástvina í einni kirkjugarðsferð, hugsað til þeirra, nýtt tímann til viskuvinnslu og hugsað um hvað þau gáfu af sér og hvað er hægt að læra af þeim.
Hvað á að gera við gömlu grafreitina? Nota þá.
Lög um kirkjugarða er að baki þessari smellu. Ljómandi leiðbeiningar fyrir ástvini er í bæklingi frá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma sem er að baki þessari smellu. Meðfylgjandi mynd er úr kirkjugarðinum í Selárdal við Arnarfjörð.