Greinasafn fyrir merki: eikenni Norðurlanda

Áfallastjórnun á Norðurlöndunum á covid-tímanum

Merkileg ráðstefna var haldin í Norræna húsinu 28. október um norræna áfallastjórnun á covid-tímanum. Ásthildur Elva Bernharðsdóttir, prófessor á Bifröst og guðmóðir sona okkar Elínar, ritstýrði bók um efnið ástamt Baldri Þórhallssyni, prófessor við HÍ. Í ritinu Nordic Crisis Management: Well-Performing Governance During COVID-19 er fjöldi greina fræðimanna í krísustjórnun og fjalla um hvernig brugðist var við faraldrinum í norrænu ríkjunum, ekki aðeins þessum hefðubundu fimm, heldur líka á Grænlandi og í Færeyjum. Ásthildur flutti aðalerindið og síðan tóku margir höfundanna þátt í kynningum og umræðum. Greining Ásthildar var djúpsækin, fræðilega víðfeðm og til lærdóms fyrir viðbrögð í kreppum framtíðar.

Mér þótti áhugavert hve margt var ólíkt í viðbrögðum hinna norrænu þjóða, heyra um hvað gekk vel, hvað miður og hvað er hægt að læra af mismunandi nálgun, hvernig nýta má styrkleika í samfélagi, þjóðum og samvinnu. Hvaða veikleikar voru opinberaðir. Hvað má læra og bæta til að bregðast betur við í næstu kreppu? Og traust er hið mikilvægasta meðal hinna norrænu þjóða – það þarf að næra og rækta.

Fræðimennirnir miðluðu vel en í lok dagskrár voru fjórar stjörnur sem vert er að mæra. Pia Hansson, sem stýrir Alþjóðamálastofnun, er framúrskarandi umræðustjóri. Svo tóku Katrín Jakobsdóttir, Pawel Bartoszeck og Víðir Reynisson þátt í umræðum með norrænu krísufræðingum. Hvílíkur snillingur sem Katrín Jakobsdóttir er. Hún heillaði með skerpu, fangbreidd, dýptarsókn og hlýju. Víðir Reynisson, einn af þrenningunni, var vissulega á heimavelli sem kreppustjóri og það var mikill fengur að hans þátttöku. En svo heillaðist ég líka að Pawel Bartoszeck. Ég hef lengi fylgst með skrifum hans og framgöngu en gerði mér grein fyrir hve dýrmætur pólsk-íslenskur bakgrunnur hans er fyrir íslenskt samfélag. Fjölskyldusögurnar sem hann sagði voru sláandi skýrar og kjörnðu sögu Evrópusögu með þeim hætti að fræðingarnir horðu opineygir á hann og skildu vitið í nálgun hans og áherslum.  

Lof sé Ásthildi, Baldri, Piu, Katrínu, Víði, Pawel og öllum hinum. Ég var stoltur Íslendingur í lok dags, þakklátur fyrir fræðilega getu, mannvit, áræðni, seiglu og leifrandi getu okkar fólks. Svo er nú Norræna húsið dýrmæti sem gaman er að sækja. Ræktum trausið og verum viðbúin kreppum af mannavöldum og líka úr djúpum lífs og náttúru.