Hér er uppskrift að borgarstjóranum – það var nafnið sem þessi kjúklingaborgari fékk. Skýringin er að við Elín matreiddum borgarana handa heimilisfólkinu á kosningakvöldi sveitarstjórnarkosninganna 16. maí 20026. Það tekur tíma að baka brauðin og útbúa sósu og meðlætið – en ég lærði margt. Mér þykir skemmtilegast að læra ný trix og útvíkka matargerðina. Frábærir kjúklingaborgar. Nafgiftin er ekki niðrunarnefning heldur varð til vegna kosningadagsins. Borgarinn er atkvæðamikill.
Fyrir fjóra
Kjöt
4 kjúklingabringur
Parmesanflögur
40 g parmesanostur, fínt rifinn
mögulega ferskt timían, saxað
Caesardressing – keisarasósa
5 ansjósur
4 tsk kapers
2 hvítlauksrif
8 dropar Worcestershire-sósa
100 g parmesanostur, fínt rifinn
2 dl majónes
1 sítróna
salt og pipar
Annað
4 hamborgarabrauð (þau heimagerðu eru best)
8 salatblöð – eða klettakáli/rúkkola
Matseld
Kjúklingurinn: Steikið kjúklingabringurnar á pönnu þar til þær eru steiktar, um það bil 5 mínútur á hvorri hlið. Einnig má elda þær í ofni við 180°C í um 15 mínútur. Kjarnhiti kjúklingsins á að vera um 72–74°C. Hvort sem bringurnar eru steiktar á pönnu eða eldaðar í ofni er mikilvægt að láta þær hvíla í að minnsta kosti 10 mínútur á eftir. Á meðan má útbúa parmesanflögurnar og dressinguna.
Parmesanflögur: Dreifið ostinum á bökunarpappír í fjóra jafnstóra, slétta hauga. Þeir eiga að vera nokkurn veginn jafn stórir að ummáli og hamborgarabrauðin. Bakið ostinn í ofni við 180°C í 6–8 mínútur, þar til hann er bráðnaður og farinn að taka örlítinn lit. Takið parmesanflögurnar úr ofninum og látið þær kólna alveg. Þær geta virst dálítið mjúkar meðan þær eru heitar, en engar áhyggjur — þær verða stökkar þegar þær kólna. Ef þið viljið krydda parmesanflögurnar má strá yfir þær smávegis af timíani. Ég gerði það og þótti gaman að búa til þessar flögur, baka þær og sjá þær svo kólna og harðna.
Sósan: Setjið ansjósur, kapers, hvítlauk, Worcestershire-sósu og helminginn af parmesanostinum í skál og stappið allt vel saman þar til blandan minnir á pestó. Bætið síðan majónesinu út í smátt og smátt og þynnið mögulega með örlitlu vatni þar til sósan er orðin eins og þykkur rjómi. Smakkið til með sítrónusafa, salti og pipar.
Steikið hamborgarabrauðin á skurðfletinum þar til þau taka lit. Skerið kjúklinginn þunnar í sneiðar svo auðveldara sé að borða borgarann. Leggið tvö salatblöð á neðra brauðið og dreypið sósunni yfir. Setjið kjúklinginn síðan ofan á, síðan aðeins meiri sósu. Setjið síðan og parmesanflöguna ofan og síðan efri brauðhelminginn.
Uppskriftin úr Alt for Damene og er upprunulega úr hamborgarabók Vladimir-feðganna.
Þökkum Drottni því að hann er góður og miskunn hans varir að eilífu. Amen.