Greinasafn fyrir merki: aspargus

Ofnbakaður aspas með steiktum möndlum, kapers og dilli

Aspas – aspargaus – er vorgrænmeti, gjarnan í fyrstu grænmetisbylgjunni í Evrópu og því sumarboði. Í Þýskalandi er talað um aspastímann, sem lýkur á Jóhannesarmessu, 24. júní. Tilfinningar eru því tengdar aspas. Hann er skemmtilegt hráefni, er einfaldur í eldamennsku, þarfnast lítillar undirbúningsvinnu og er bakaður í ofni. Þegar hann hefur verið steiktur er hann toppaður með smjörsteiktum möndluflögum og stökkum kapers.

Rétturinn passar ljómandi vel með nýjum kartöflum eða öðru grænmetismeðlæti og hentar sem léttur forréttur með góðu súrdeigsbrauði.

Hráefni

600 g grænn aspas, harðir endarnir skornir af

3 msk ólífuolía

salt og nýmalaður svartur pipar

30 g smjör

20 g möndluflögur

30 g litlir kapers, þerraðir vel með eldhúspappír

5–10 g ferskt dill, gróft saxað (¼–½ bolli)

Þegar ég tók meðfylgjandi mynd notaði ég líka 1 perlulauk sem ég skar þunnt og steikti með aspasnum. Og notaði ríflega af möndlum og kapers, slumpaði. 

Matseld

Hitið ofninn í 220°C. Klæðið bökunarplötu með bökunarpappír.

Veltið aspasnum upp úr 1 matskeið af ólífuolíu, salti og slatta af nýmöluðum svörtum pipar. Raðið stilkunum á bökunarplötuna og hafið bil á milli. Bakið í 8–12 mínútur, eftir þykkt aspassins. Hristið plötuna einu sinni eða tvisvar meðan á bakstri stendur. Aspasinn á að vera meyr og byrjaður að verða fallega gullbrúnn. Takið úr ofninum og látið bíða á plötunni.

Bræðið smjörið í litlum potti við meðalhita þar til það freyðir. Bætið möndluflögunum út í og steikið þær í 1–2 mínútur, hrærið reglulega, þar til þær eru gullinbrúnar. Gætið þess að þær brenni ekki. Hellið smjörinu og möndlunum jafnt yfir aspasinn. Hellið 2 matskeiðum af ólífuolíu í pott eða litla pönnu og hitið vel. Setjið kapers út í og steikið í 1–2 mínútur, hrærið stöðugt, þar til þeir opnast og verða stökkir. Takið kapersinn upp með gataspaða og dreifið yfir aspasinn. Stráið dillinu yfir og blandið öllu varlega saman með töng eða tveimur skeiðum. Færið á fallegt fat og berið fram volgt.