Í morgun skrúfuðum við frá krananum. Vatnið streymdi, kalt, tært og hreint. Allt var eins og það átti að vera og við tókum varla eftir rennslinu. Við drukkum vatnið, helltum því í kaffivélina eða fylltum á espressókönnunna og burstuðum líka tennurnar. Nóg vatn. Enginn þurfti að sækja vatnið langa leið. Við þurftum ekki að spara til að nóg væri eftir fyrir aðra líka. Þegar hið venjulega er orðið sjálfsagt tökum við varla eftir því.
Jesús sagði: „Verið ekki áhyggjufull um líf yðar, hvað þér eigið að eta eða drekka.“ Hvað þér eigið að drekka. Getum við sagt þetta nú þegar vatnsskortur ríkir víða í veröldinni? Við komum síðar að þeirri spurningu.
Jesús sagði líka: „Lítið til fugla himinsins. Hyggið að liljum vallarins, hversu þær vaxa.“ Hann byrjaði ekki á að útlista eða skýra flókna lífsfjarlæga kenningu. Hann bað fólk einfaldlega að opna augun. Að horfa, ekki bara á sjálft sig, verkefni sín eða knýjandi mál heldur á heiminn, umhverfið, lífið. Hyggið að, takið eftir – veitið athygli.
Halldór vatnspóstur
Afi minn og amma bjuggu í nítjándu aldar steinbæ á Grímsstaðaholti, sem enn er til og er innan við 700 metra frá þessari kirkju, Neskirkju. Þau áttu jörð þar sem nú eru götur og hús milli Fálkagötu og Lynghaga og í litla bænum þeirra fæddist faðir minn. Þau áttu kýr og hest, og afi aflaði aukatekna með því að aka vatni heim til Reykvíkinga. Hann var vatnspóstur. Svo kom vatnsveitan. Afi missti vissulega aukatekjurnar en Reykjavík varð betri borg. Ég hugsa oft til Halldórs afa þegar ég skrúfa frá krananum. Áður þurfti mann og hest fyrir vatnsflutning en nú kemur vatnið fyrirhafnarlaust úr krananum. Þægindin hafa aukist. En hefur athyglin aukist og vitundin skerpst? Og mennskan? Og hvernig er með vatnið og stöðu þess í veröldinni?
Náttúrverndarsamtökin Aldin
Við í Aldin aðstoðum við helgihaldið í dag. Við erum fólk á þriðja æviskeiði, með ólíkar skoðanir en sameiginlegan áhuga á náttúruvernd. Við höfum fengið skjól í safnaðarheimili Neskirkju og komum saman til að fræðast, ræða loftslagsmál og önnur mikilvæg umhverfismál, skipuleggja verkefni og stundum mótmæli. Við vitum af reynslunni að ekki er allt sem kallast framfarir til bóta – og við erum nógu nógu þroskuð og frjáls til að segja það upphátt. Líklega hefðum við unað okkur vel í hópnum á fjallinu og kinkað kolli þegar Jesús benti á fuglana og liljurnar og talaði líka um áhyggjur og hvað við ættum að borða og drekka.
Við erum vatnssósa
Veitum athygli og horfum núna á líkama okkar. Meirihluti líkama okkar er vatn og hefur alla tíð verið frá upphafi. Fyrsta umhverfi okkar var vatnsríkur móðurkviðurinn, þar sem við heyrðum dyn blóðsins í líkama móður okkar. Nýfætt barn er að mestu vatn, nærri 75% af líkamsefnum þess.
Og mörg okkar voru borin að skírnarfonti. Þar var vatni ausið yfir höfuð okkar í nafni föður, sonar og heilags anda. Vatnið fylgir okkur frá upphafi lífsins og inn í trúna. Það er lífsnauðsyn og helgitákn, forsenda lífs og líka tákn góðs lífs.
En vatnið í okkur varð ekki til í okkur. Það á sér mun lengri sögu en okkar líf. Árafjöldi líkama okkar er sem augnablik á skala jarðsögunnar. Eitthvað af vatninu í þér hefur verið í hafi og skýjum, ám og jöklum, bergi og lífverum í milljónir ára. Það hefur gufað upp, fallið sem regn á fjöll, seytlað niður í jörðina og birtist aftur í lindum veraldar. Við eigum ekki vatnið. Við fáum það lánað. Við erum farvegur vatnsins á leið þess um heim lífsins. Það kom til okkar og fer frá okkur að nýju í hinni stórkostlegu hringrás lífs. Hyggið að: Vatnið á okkur.
Frá eign til ábyrgðar
Við erum hvött til að nota efnisleg gæði þessa heims. Og við notum náttúrugæðin. Græðgin spyr: Hversu mikið getum við tekið? Hversu mikið getum við virkjað, dælt og byggt? En trú og náttúruvinsemd spyrja annarrar spurningar: Hverju hefur okkur verið trúað fyrir? Notkunarspurningin snýst um eign og yfirráð, en hin um ábyrgð og þjónustu. Jesús sagði: „Lítið.“ „Hyggið að.“ Skynjið og skiljið áður en þið takið. Þegar við sjáum og álítum eitthvað aðeins sem hráefni spyrjum við hvað við getum fengið út úr því og hvernig við getum notað það. En þegar við metum það – sem hluta af samfélagi lífsins og nauðsynlegt fyrir heilbrigði og farsæld – spyrjum við: Hvernig ber mér að umgangast hráefni og gæði veraldar?
Þyrstur heimur
Þegar við skoðum kort og hnattlíkön virðist Jörðin vera vatnsheimur. Meira en sjötíu prósent yfirborðs Jarðarinnar er vatn. En svo þegar við skoðum nánar uppgötvum við að vatn er bara 0,023% af heildarmassa jarðarinnar. Og af því vatni sem til er í jörð, á jörð og í lofthjúpnum er aðeins um 2,5% ferskvatn sem lífverur á landi geta nýtt. Vatn er því átakanlega takmörkuð auðlind, sem auðvelt er að spilla og menga og því vaxandi samkeppni um notkun þess.
Vatnsvá heimsins hefur aukist mjög undanfarna áratugi, er orðin skelfileg í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku. Löngu fyrir árásir Bandaríkja á Íran var fólk farið að flýja Teheran vegna vatnsskorts. Ástandið er grafalvarlegt víða í Indlandi og Pakistan. Vatnsálag vex í Suðvestur-Bandaríkjunum, Mexíkó, Suður-Afríku, Kína og Ástralíu. Aralvatnið í Asíu er ónýtt. Mexíkóborg sígur hratt niður vegna þess að grunnvatni hefur verið dælt óhóflega upp. Í Suður-Evrópu búa um 30% fólks við varanlegt vatnsálag og allt að 70% geta orðið fyrir árstíðabundnu álagi að sumarlagi. Risaholur myndast þessi misserin á akuryrkjusvæðum Tyrklands vegna ofdælingar grunnvatns. Coloradoáin, ein mikilvægasta á vesturhluta Bandaríkjanna, er svo ofnýtt að hún nær varla til sjávar. Og nýr ofurþyrstur vatnsnotandi hefur bæst við – gagnaverin. Heimur gervigreindarinnar virðist stafrænn og nærri því efnislaus, en ofurheit gagnaverin þarf að kæla. Því rífast menn í Bandaríkjunum um gagnver. Stafræni heimurinn drekkur líka, hann er drykkjusjúkur.
Vatnið undir fótum okkar
Þar sem vatnið minnkar eða hverfur verður uppskerubrestur, veikindi, fólksflutningar og stundum átök. Þetta kemur okkur við. Heimshitnun og vatnsgræðgi riðla jafnvægi og heimskerfum og hrekja hundruð milljóna á flótta frá heimilum sínum í suðri í leit að kælu og vatni í norðri.
Ísland er vatnsríkt land – nafn þess vísar meira að segja til vatns í föstu formi. En vatnsauður okkar er ekki óþrjótandi. Grunnvatnið undir fótum okkar er ekki dauður forði í neðanjarðartanki heldur lifandi kerfi. Regn og snjór seytla niður í gegnum jarðlög, safnast fyrir, renna hægt og koma upp í lindum. Plöntur, fuglar, fiskar og heil vistkerfi heimsins hafa aðlagast vatnsrennslinu. Við breytum ekki bara tölum á Excelskjali ef við tökum meira en kerfið þolir. Við breytum lífskerfinu, særum nátturuna, veiklum Jörðina, göngum á rétt annarra lífvera.
Áhyggjuleysi og réttlæti
Jesús sagði: „Hafið ekki áhyggjur af morgundeginum.“ Orð hans hvöttu ekki til skeytingarleysis. Það var hvatning til að láta ótta ekki ráða heldur vinna verk dagsins og gera gott. Og svo sagði hann líka: „Leitið fyrst ríkis hans og réttlætis.“ Já, réttlætis. Vatn er réttlætismál. Barnið þarfnast vatns, bóndinn og borgin líka. Fuglinn þarf vatn og liljan líka. Fólkið í Afríku, Asíu, Ameríku og Reykjavík þarfnast sama undraefnisins. Vatnsvernd er ekki aðeins verkefni líffræðinga, veðurfræðinga og verkfræðinga. Hún er siðferðilegt mál og trúarlegt. Vatnsvernd þarf ekki og á ekki að spretta af hræðslu við framtíðina. Hún má og getur sprottið af ást á heiminum. Mannréttindi eru mikilvæg en allt líf á að njóta vatnsréttinda.
Það sem við sjáum lærum við að elska
Jesús sagði ekki: Hugsið um fuglana. Hann sagði: Lítið til þeirra. Hann sagði ekki: Munið eftir liljunum. Hann sagði: Hyggið að þeim. Umhyggja byrjar í athygli. Við verndum það sem við höfum lært að sjá. Þau sem hafa fylgst með lóunni koma að vori heyra öðruvísi þegar talað er um eyðingu búsvæða. Þau sem þekkja lindir finna til þegar þeim er ógnað. Þau sem hafa séð votlendi lifna á vorin sjá ekki aðeins fermetra og ferkílómetra lands þegar á að ræsa það fram. Athygli er upphaf ástar og ástin elur ábyrgð.
Að skila vel
Við sem höfum lifað tvö æviskeið og erum komin á það þriðja vitum vel það, sem yngra fólk þarf tíma og lífspróf til að læra, að við tökum ekkert með okkur inn í eilífðina. Þroski leiðir til skilnings á því að lífið verður ekki betra með því að eignast meira heldur í því að læra að skila vel af sér til framtíðar. Skila börnum okkar og barnabörnum heimi sem er lífvænlegur. Skila hálendinu óspjölluðu, loftinu ómenguðu, ánum spriklandi af lífi, votlendinu lifandi og vatninu hreinu. Að vernda náttúruna varðar ekki meinlæti eða harðræði. Það er að skilja betur hvað gott líf er – að njóta án þess að sóa, nýta án þess að eyðileggja og þiggja í þakklæti. Góð ráðsmennska er að skila af sér í betra ástandi en maður tók við.
Lítum því til fuglsins. Lítum til liljunnar. Lítum með velþóknun á regnið á glugganum, lindina, ána, jökulinn og vatnið sem rennur úr krananum heima hjá okkur. Lítið. Hyggið að. Elskið. Verndið.
Dýrð sé Guði, föður, syni og heilögum anda, sem elskar líf, fugla himins, liljur vallarins og vatnið sem streymir um alla sköpunina. Amen.
Guðspjall Mt 6,25-36: Verið ekki áhyggjufull um líf yðar, hvað þér eigið að eta eða drekka né heldur um líkama yðar, hverju þér eigið að klæðast. Er lífið ekki meira en fæðan og líkaminn meira en klæðin? Lítið til fugla himinsins. Hvorki sá þeir né uppskera né safna í hlöður og faðir yðar himneskur fæðir þá. Eruð þér ekki miklu fremri þeim? Og hver yðar getur með áhyggjum aukið einni spönn við aldur sinn? Og hví eruð þér áhyggjufull um klæðnað? Hyggið að liljum vallarins, hversu þær vaxa. Hvorki vinna þær né spinna. En ég segi yður: Jafnvel Salómon í allri sinni dýrð var ekki svo búinn sem ein þeirra. Fyrst Guð skrýðir svo gras vallarins sem í dag stendur en á morgun verður í ofn kastað, skyldi hann þá ekki miklu fremur klæða yður, þér trúlítil! Segið því ekki áhyggjufull: Hvað eigum vér að eta? Hvað eigum vér að drekka? Hverju eigum vér að klæðast? Allt þetta stunda heiðingjarnir og yðar himneski faðir veit að þér þarfnist alls þessa. En leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, þá mun allt þetta veitast yður að auki. Hafið því ekki áhyggjur af morgundeginum. Morgundagurinn mun hafa sínar áhyggjur. Hverjum degi nægir sín þjáning.
Neskirkja, 27. september 2026. Umhverfismessa með þátttöku félaga í umhverfissamtökunum Aldin, sjá www.aldnir.is
