Greinasafn fyrir merki: Albert Damus

Að mæta ekki í eigin dauða

„Ég er ekki hræddur við dauðann; ég vil bara ekki vera á staðnum þegar hann verður.“ Að baki fyndninni í þessari lykilsetningu Woody Allen leyndist stingandi ótti við dauðann og óvissu um framhaldið. Er hægt að vera fjarverandi, mæta ekki í eigin dauða? Er hægt að sleppa eða slaufa dauðastundinni og segja bara „nei takk, ekki fyrir mig?“

Í verkum Allen birtust aftur og aftur meginstefin ást, breyskleiki manna, tilviljun og örlög, sektarkennd og samviska, Guð og trúarleit, list sem athvarf og dauði sem óumflýjanlegur endir alls mannlegs lífs. 

Woody Allen var þekktur fyrir gamanmyndir sínar. Þær voru ekki léttmeti eða grunnir farsar heldur ógnvænlegar og fyndnar. Hann fléttaði eigin dauðaglímu og allra manna inn í kátínu myndanna, notaði húmorinn til að lifa með dauðanum og þrátt fyrir hann. Sprellið var vörn gegn angist og leið eða aðferð til að horfast í augu við veruleika sem enginn fær flúið eða breytt.

Í kvikmyndinni Ást og dauði (1975) lék Allen sér að hugmyndum og dauðaglímu Tolstoj, Dostojevskí og Bergman og sýndi mann sem reyndi af öllum mætti að forðast hið óhjákvæmilega. Í Hönnu og sytrum hennar (1986) sannfærðist höfuðpersónan um að hún væri dauðasjúk og glímdi við ofurspurningar um Guð, tilgang lífsins og hvort eitthvað taki við eftir dauðann. Í kvikmyndinni Glæpir og afbrot (1989) tengdist dauðinn merkingu siðferðis. Getur maður lifað með sekt sinni ef enginn Guð dæmir og ekkert algilt réttlæti er til? Í Vendipunkti (2005) virtist afstaða Allen vera að tilviljun og heppni ráði meiru í veröldinni en réttlæti eða gott siðferði.

Þótt Allen væri efins um að til væri endanleg merking virðist hann, líkt og Albert Camus, tjá að vert sé að lifa af einurð þrátt fyrir dauðann. Í heimspekiritinu um Sisifos (þeim sem þrælaði við að velta steini aftur og aftur upp fjall) komst Camus að þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir allt eigi maður að „ímynda sér Sisifos hamingjusaman.“ Í þeim anda Camus lætur Allen persónur sínar halda áfram að lifa, elska, hlæja og fara í kvikmyndahús þótt ógnin sé nærri og engin lausn sé til. Stíllinn sé bara: „Látum eins og ekkert sé.“

Í kvikmyndum Ingmar Bergman var ekki skafið af alvörunni, dauðinn krafðist svara um Guð, trú og tilgang. Alvöruna ýkti Bergmann með myrkum drunga myndanna. En Allen fór allt aðra leið, hann faldi og huldi ógn stóru spurninganna með kátínu, kaldhæðni, sjáfsháði og fyndni. Aðferð Woddy Allens var svipuð aðferð trúðsins við konungshirðir miðalda, að bregðast við alvörumálum og þrungnum sannleika með hoppum, híum og hnyttni (skoðið trúð Kurosawa í kvikmyndinni Ran)..

Gamanið í Allenmyndunum var svo sannarlega ekki afneitun á alvöru dauðans heldur fremur tilraun til að lifa þrátt fyrir vitneskju um hrylling hans. Kátínuvæðing dauðaógnarinnar markar, að mínu viti, sérstöðu Woody Allen sem kvikmyndagerðarmanns. Hann notaði trúðshefðina og færði inn í tilveru til dauða og nærvitundina um endinn.

Woody Allen vildi helst sleppa því að vera viðstaddur eigin dauðastund. En í verkum hans markaði dauðinn aldrei aðeins endalok lífsins heldur þjónaði mikilvægu hlutverki til lífslistar eða lífseflingar. Allen notaði dauðann sem sannleiksspegil sem neyddi fólk til að ákveða hvernig það vildi lifa gagnvart hinu óhjákvæmilega. Þegar fólk veit og skilur að hverju dregur þarf það að ákveða vægi og iðkun  ástar, tengsla, ábyrgðar, efa og leit mannsins að merkingu. Dauðinn kallar fram lífskúnst. Það er jú ein útgáfan af listinni að deyja, ekki að sigra dauðann heldur að læra að lifa vel þrátt fyrir nærveru og skugga hans. 

Myndin er úr smiðju gervigreindar.