Laxatartar

Þegar búið er að veiða silung eða lax úr ómengaðri á (eða góðu fiskborði) er hægt að búa til tartar sem gleður og gælir við bragðlauka. Gerið svo vel að nota ekki eldisfisk í þennan rétt því villti fiskurinn hentar betur, bragðið er meira. Þetta er frábær forréttur og wasabi gefur skemmtilega vídd og rífur í. 

tartar

  • silungs- eða laxaflak roðflett og beinhreinsað
  • sjávarsalt
  • safi úr 1 límónu
  • ½ agúrka, kjarnhreinsuð og skorin í smáa teninga
  • ¼ lítill rauðlaukur, fínsaxaður
  • 1 handfylli ferskt kóríander, saxað
  • 1 lárpera, skorin í smáa teninga
  • 1 kúla mozzarellaostur, skorinn í smáa teninga
  1. Stráið sjávarsalti yfir laxaflakið og látið standa í kæli í klukkutíma.
  2. Skafið saltið af og skerið laxinn í smáa teninga. Hellið límónusafanum yfir.
  3. Blandið öðrum hráefnum saman við fiskinn og dreypið yfir með wasabi-sósu (um leið og borið er fram, ekki láta standa of lengi).

Wasabi-sósa

  • 1 msk wasabi
  • 1 msk tamari-sósa
  • 1-2 msk límónusafi
  • 1 msk sesamolía
  • sjávarsalt
  • svartur pipar
  • Hrærið öllum hráefnum saman og smakkið til með sjávarsalti og svörtum pipar.Borðbæn: „Fyrir heilsu, gleði og daglegt brauð við þökkum þér ó, Guð. Amen.“