Við Ísak vorum í puði og útréttingum fyrri hluta dags og komum svangir heim. Shaskuka í Jerúsalem leitaði á huga minn. Til voru egg, laukur og paprikur í ísskápnum og flest sem þarf í shashuka. Við áttum líka alvöru grískan feta og dill. Eftir hálftíma vorum við farnir að borða þennan litríka undramat, ekki síðri en við Jaffahliðið í Zíon. Hér er uppskriftin
Fyrir 4
Hráefni:
- 2–3 msk ólífuolía
- 1 meðalstór laukur saxaður
- 2 paprikur (rauð eða gul), skornar í ræmur
- 3 hvítlauksrif fínt söxuð
- 1 tsk kúmen mulið
- 1 tsk paprikuduft (reykt ef til er)
- ¼ tsk cayennepipar (eða eftir smekk)
- 1 dós (400 g) saxaðir tómatar
- 1 msk tómatþykkni
- Salt og nýmalaður svartur pipar
- 4–6 egg
- Handfylli af dilli, kóríander eða steinselju
Matseld:
- Hitið olíu í stórri pönnu á miðlungshita. Steikið laukinn í 5–6 mínútur, þar til hann verður mjúkur.
- Bætið papriku og hvítlauk út í og steikið áfram í um 8 mínútur, þar til paprikan er orðin mjúk.
- Kryddið: Kúmen, paprikuduft og cayenne. Hrærið í 1–2 mínútur til að kryddið opnist í olíunni.
- Bætið tómötum og tómatþykkni út í. Látið malla í 10–15 mínútur þar til sósan er orðin þykk og ilmsterk. Smakkið til með salti og pipar.
- Gerið holur í sósuna og brjótið eggin varlega ofan í. Ýtið við hvítunni yfir í rautt umhverfið svo eggjahvítan steikist og hvítni alveg. Hyljið pönnuna og eldið á lágum hita í 7–10 mínútur, þar til eggjahvítan hefur stífnað en rauðan er enn mjúk.
- Stráið ferskum jurtum og muldum fetaosti yfir áður en borið er fram.
Ljómandi að nota snittubrauð til að skófla upp sósu – þetta sem Ítalir kalla scarpeda. Það er líka hægt að nota jógurt eða labneh í stað fetaostsins. Matreiðslan og hráefnanotkunin er opin og kallar á hugvit og spuna.
Bæn: Þökkum Drottni, því að hann er góður og miskunn hans varir að eilífu.