Greinasafn fyrir merki: óhefað brauð

Brauðið sem við brjótum

„Það er gott brauð, sem þið notið við altarisgönguna?” var sagt í kirkjunni eftir skírdagsmessu. Það var ósýrt brauð og þannig brauð hefur Jesús líklega notað í síðustu kvöldmáltíðinni. Upppskriftin er einföld.

 2 bollar af spelt-hveiti

¾ bolli kalt vatn

2 matskeiðar ólívuolía

1 teskeið salt

Blandið hveiti, olíu, salti og vatni saman, hnoðið í þrjár mínútur. Skiptið í 8 hluta. Fletjið hvert stykki í þunna hringlaga köku og stingið hana sem víðast með gafli. Best er að steikja á pönnu, en einnig hægt að baka í ofni við 250°C í 10 mínútur. Pottpanna, þ.e. flatkökupanna gafst mér vel. Athugið, að steikingarhátturinn skiptir máli hvað varðar bragð. Ef nota á brauðið sem matarviðbit er hægt að krydda það með hvítlauk, sesam eða öðru því kryddi, sem fólki líkar best.

 Af hverju notaði Jesús ósýrt brauð á skírdag? Ástæðan er flýtir hinna fornu hebrea er þeir flýðu Egyptaland. Ekki tókst að hefa brauð áður en þotið var af stað og því varð að baka óhefað brauð. Í minningarmáltíðum um flóttann úr þrælakistunni notuðu Gyðingar því ósýrð brauð og þar með Jesús líka. Við getum sem best endurlifað síðustu kvöldmáltíð Jesú með því að nota sams konar brauð og hann og notið þar með allrar táknhefðarinnar.