Doro wat er einn af þjóðarréttum Eþíópíu. Hann er gjarnan borinn fram við hátíðleg tilefni og hentar vel að útbúa fyrirfram. Þau sem vilja milda útgáfu geta notað sæta papriku í stað chili.
Fyrir 5
Hráefni
- 8–10 úrbeinuð og skinnlaus kjúklingalæri
- Safi úr 1 sítrónu
- 1 msk hvítvínsedik
- 4–5 stórir laukar, skrældir og skornir í fjórðunga
- 1 bútur ferskt engifer (um 2–3 cm), skrældur og rifinn
- 4 hvítlaukslauf, pressuð
- ⅓ bolli ólífuolía
- 1 msk chiliduft t.d. cayenne
- 1 msk sæt paprika
- ½ tsk malað engifer
- ½ tsk malað kóríander
- 1 tsk malað kardimommuduft
- ¼ tsk timíankrydd
- ¼ tsk malaður grikkjasmári – fenugreek – ef hann er til í kryddskúffunni
- ¾ tsk salt (eða eftir smekk)
- Ögn nýmalaður svartur pipar
Borið fram með injera – eþíópísku súrdeigsflatbrauði. Ef ekki er til injera má notast við pítubrauð eða naanbrauð. Svo er hægt að sjóða hrísgrjón með líka. Harðsoðnu eggin eru auðvitað háð frelsi fólks og má sleppa, en þau gefa litbrigði og bragð.
Matseld
- Hitið ofninn í 175°C. Nuddið kjúklinginn með sítrónusafa og ediki.
- Leggið kjúklinginn á ofnplötu með brúnum og bakið í 20 mínútur. Hellið vökvanum af. Bakið í 10 mínútur til viðbótar og hellið aftur af. Takið úr ofni og leggið til hliðar.
- Á meðan kjúklingurinn bakast: Setjið lauk, ferskan engifer og hvítlauk í matvinnsluvél og saxið fínt – þ.e. næstum í mauk en þó með örlítið bit.
- Hitið olíu á djúpri pönnu við meðalhita. Setjið laukblönduna út í og látið krauma í um 20 mínútur, hrærið reglulega, þar til laukurinn er orðinn gullinn og mjúkur.
- Hrærið 1 msk af chiliduftinu saman við ásamt papriku, engifer, kóríander, kardimommum, timíani, grikkjasmára, salti og pipar.
- Látið krauma í nokkrar mínútur. Smakkið sósuna til – bætið meira chili ef þið viljið meiri styrk, sem og salti og pipar. Setjið kjúklinginn út í og látið malla undir loki í 15 mínútur. Bætið vatni við ef þörf er á til að ná hæfilega þykkri sósu.
Berið fram með injera (eða pítu, naan eða hrísgrjónum). Hefð er fyrir að setja harðsoðin egg út í réttinn í lokin eða hafa í skál svo þau sem vilja geti bætt þeim við.
Svo er hægt – að eþíópskum hætti – að auka fjölbreytnina með alls konar sósum og viðbótum. Myndin hér að neðan er frá undirbúningi veislu. Laukfjöldinn var talsverður. 
