Greinasafn fyrir merki: Jerúsalemsalat

Jerúsalemsalat

Þessi dásamlega salatuppskrift er úr Jerúsalembók þeirra Ottolenghi og Tamimi, sem vinir mínir á Hagamel gáfu mér einu sinni fyrir að skíra barnið þeirra. 

Hráefni og meðferð

1 rauðlaukur

100 g döðlur – Medjool eru bestar en hinar duga

1,5 msk. hvítvínsedik

Skerið döðlurnar í fernt á lengdina. Sneiðið laukinn í tvennt og síðan þvert og þunnt. Setjið lauk og döðlur í skál ásamt edikinu. Blandið vel saman og látið marinerast í hálfa klukkustund. Þá er edikið síað frá. Þrjár súrdeigsbrauðsneiðar (eða tvö pítubrauð rifin í bita).

75 g möndlur

1,5 tsk. sumac (1 tsk. sítrónupipar getur komið í stað sumac)

1/2 tsk. chiliflögur sletta af sjávarsalti

2 msk. smjör

1 msk ólífuolía

Grófsaxa möndlurnar. Skera súrdeigsbrauð eða góðar pítur í bita, ca 1 cm á kant. Hitið olíu og smjör á pönnu og veltið brauðinu á pönnunni í tvær mínútur. Kryddið þá með salti, sumac og chiliflögum. Setjið möndlurnar út í og steikið í tvær mínútur í viðbót.

Spínat 150 g – (alvöru spínat)

Kjarnar úr hálfu granatepli (pomegranate)

1 lúka bláber safi úr ½ sítrónu

Ólífuolía

salt

Setjið spínat á fat og þá brauðteningana og síðan möndlurnar yfir. Síðast bláber og granateplin yfir. Bætið einni msk. ólífuolíu saman við ásamt sítrónusafanum. Bragðið til með salti – ef þarf.