Greinasafn fyrir merki: hrísgrjón

Hrísgrjón í ofni með fetaosti og granateplasalsa

Þessi hrísgrjónauppskrift er stórkostleg og er úr Simple-bók Ottolenghi. Að baka þau í ofni, eins og hér er gert, klikkar ekki, ekki heldur þegar tugir eru í mat. Þessi réttur hefur m.a. verið eldaður fyrir 700 manna hátíð! Rétturinn er ljómandi meðlæti, bökuðu rótargrænmeti, hægelduðu lambakjöti eða svínakjöti. Hægt er að undirbúa salsað nokkrum klukkustundum áður og geyma í ísskáp.

Fyrir 6 manns

Hráefni

400 g basmati hrísgrjón

50 g smjör, brætt

800 ml sjóðandi vatn

50 g mynta (40 g á stilkum; lauf af 10 g rifin niður fyrir salsað)

150 g fetaostur, mulinn í 1–2 cm bita

Salt og svartur pipar

Salsa

40 g grænar ólífur, steinhreinsaðar og skornar í þunnar sneiðar (nota stundum capers í stað ólífanna).

Granateplafræ (um 90 g)

50 g valhnetur, létt ristaðar og gróft brotnar (eða pekanhnetur)

3 msk ólífuolía

1 msk granateplasíróp (pomegranate molasses) – eða hunang

1 lítið hvítlauksrif, marið

Matseld

  1. Hitið ofninn í 230°C (blástur), eða eins heitan og hann kemst.
  1. Setjið hrísgrjónin í eldfast mót með háum brúnum (um 20 × 30 cm).

Kryddið með ¾ tsk salti og vel af pipar. Hellið brædda smjörinu og sjóðandi vatni yfir. Leggið myntustilkana ofan á og lokið mótinu þétt með álpappír svo allt sé vel lokað. Bakið í 25 mínútur, þar til hrísgrjónin eru létt og mjúk og allur vökvinn hefur sogast upp. 

  1. Á meðan: Setjið allt hráefni í salsað (nema rifnu myntuna, 10 g) í meðalstóra skál með ¼ tsk salti. Blandið vel saman og setjið til hliðar.
  1. Takið hrísgrjónin úr ofninum og fjarlægið álpappírinn. Takið laufin af myntustilkunum (stilkunum er hent) og setjið laufin aftur út á hrísgrjónin. Stráið fetaostinum yfir og hrærið eða ýtið þeim niður í hrísgrjónin.

Rétt áður en borið er fram: hrærið rifnu myntunni út í salsað og dreifið því jafnt yfir hrísgrjónin. Berið fram heitt.

Bæn: Þökkum Drottni, því að hann er góður – og miskunn Guðs varir að eilífu. Amen.