Greinasafn fyrir merki: döðlukryddaðar gulrætur

Döðlukryddaðar gulrætur

Ottolenghi setti þessa gulrótauppskrift á vefinn að morgni og Elín matreiddi hana að kvöldi! Gulræturnar eru ofnbakaðar og kryddlögurinn er búinn til úr döðlum, sítrónu og baharat-kryddi. Bragðið er súrsætt. Rétturinn er ljómandi sem meðlæti með ýmsum aðalréttum. Við notuðum réttinn sem meðlæti með súmak-kjúklingarétti en hann gengur með alls konar unaðssemdum.

Fyrir 4 – sem hliðarréttur

 Hráefni

700 g gulrætur, afhýddar og skornar á ská í 1 cm þykkar sneiðar

4 msk ólífuolía

½ tsk reykt paprikuduft

½ tsk kúmen, mulið

50 g valhnetur

Kryddjurtalögur

½ rauðlaukur, þunnt sneiddur í hálfmána

1 lítill rauður chilli, fínsneiddur

2 sítrónur (aldinið úr heilli sítrónu en kreistur safi úr annarri – samtals ca 2-3 msk)

20 g kóríander

20 g mynta

Döðlusósa

1 msk baharat-krydd (sjá hér að neðan)

70 g döðlur, grófsaxaðar

½ tsk Aleppo-chilli (eða annað chilli)

1½ tsk döðlusíróp

Fínt sjávarsalt

Matseld

Forhitið ofn í 200°C.

Gulrætur: Blandið gulrótum, 2 msk af ólífuolíu, papriku, kúmeni og 1½ tsk salti á bökunarplötu með bökunarpappír. Bakið í 35 mínútur og hrærið einu sinni – þar til þær fara að taka lit á köntunum.

Valhnetur: Ristið í ofni í 5–8 mínútur og saxið gróft.

Kryddjurtalögur: Blandið lauk, chilli, 2-3 msk sítrónu-safi og -aldin og ¼ tsk salti. Látið standa í 15–20 mín þar til laukurinn mýkist. Blandið síðan um þriðjungi af kryddjurtunum saman við.

Döðlusósa: Skerið endana af heilu sítrónunni, fjarlægið börk og hvíta lagið og saxið aldinið gróft  og fjarlægið steinana. Hitið við vægan hita 2 msk ólífuolíu. Bætið við baharat, döðlum, sítrónunni, Aleppo-chilli (eða öðru chili) og 1 tsk salti. Látið malla í 5–8 mín þar til döðlurnar mýkjast og bragðið blandast. Takið af hitanum, hrærið 1 msk sítrónusafa og döðlusírópi saman við og setjið í skál. Bætið gulrótum, valhnetum og restinni af kryddjurtunum út í sósuna og blandið varlega. 

Borið fram

Setjið gulræturnar á fat og dreifið súrsuðum lauk yfir.

Hvað er baharat? Hægt er að kaupa baharat en Elín bjó til baharat heima. Einföld uppskrift er svona: 2 tsk kúmen; 2 tsk kóríander; 1 tsk svartur pipar; 1 tsk paprika; ½ tsk kanill; ¼ tsk negull; ¼ tsk múskat. Hráefnin eru möluð og blandað saman.

Fallega skeiðin á kennimyndinni er frá Jens.

Bæn: Þökkum Drottni, því að hann er góður og miskunn hans varir að eilífu. Amen.