Lambalæri með kóríander og hunangi

Lamb er biblíuleg táknmynd og lambakjöt var á borðum biblíufólks. Því var fórnað sem páskalambi, 2Mós 12.3–14 og um Jesú var sagt að hann væri guðslambið, Jóh 1.29. Til að minnna á djúpsamhengi gyðinglegrar og kristinnar sögu hafa kristnir menn neytt lambakjöts á páskum. 

Í þessari uppskrift er lambalærið er látið liggja í marineríngu af kóríander, myntu, dilli, hvítlauk, kúmeni, ólífuolíu, granateplasafa og hunangi. 

Hráefni (fyrir 6–8 manns):

  • 1 lambalæri (2–2,5 kg) 
  • 4 msk ólífuolía
  • 8 hvítlauksrif, söxuð
  • 1 msk kúmín
  • 2 tsk kóríander mulið
  • 2 tsk mynta, saxað
  • 20 g ferskt dill, saxað
  • 2 msk hunang
  • 50 ml granateplasafi eða vínedík
  • 2 tsk salt

Aðferð:

  1. Blandið saman ólífuolíu, hvítlauk, kúmín, jurtum, hunangi og granateplasafa. Skáskerið þunna skurði í kjötið. Nuddið blöndunni vandlega yfir allt lambalærið og í skurðina. Kryddið með salti og pipar. Látið marinerast í kæli yfir nótt.
  2. Hitið ofn í 110°C. Setjið lærið í ofnfat og hellið restinni af marineringunni yfir. Setjið lok eða álþynnu yfir kjötið.
  3. Steikið í 4-5 klst, eftir stærð. Ausið safanum í fatinu yfir kjötið á 30 mínútna fresti.
  4. Látið kjötið hvíla í 15 mínútur áður en það er skorið.
  5. Notið safann úr ofnfatinu til sósugerðar.

Við hæfi að búa til góða rauðvínssósu með.

Jerúsalemsalat og hrísgrjónaréttur Ottolenghi passa vel með þessum kjötrétti.