Davíð Oddsson – blesuð veri minning hans

Davíð Oddsson er dáinn. Blessuð veri minning hans. Þegar við Davíð kynntumst þögðum við báðir. Það var á kyrrðardögum í Skálholti. Ég þjónaði reyndar í helgihaldi daganna. Davíð leitaði í næði frá ókyrru stjórnmálanna. Eftir kyrrðardaga byrjaði hann að tala og var niðri fyrir. Svo hló hann líka. Við áttum mikil samskipti síðar þegar hann var forsætisráðherra og notaði ráðherrabústaðinn á Þingvöllum. Ég bjó þá í hinum hluta Þingvallabæjarins og við röbbuðum gjarnan. Þá komst ég að því hve Davíð var snarfyndinn og leiftrandi. Einhverju sinni kom ég að honum þar sem hann var að glettast við hundinn sinn og hrósaði honum fyrir að vera góður við hvutta. Davíð leit þá upp og augun kættust þegar hann sagði: „Hitler var líka hundavinur!“ Það var líka alltaf gaman að vera með Davíð í opinberum heimsóknum. Hann var jafnan manna kátastur. Heimsókn Shimon Perez, þá utanríkisráðherra, til Íslands var t.d. mjög eftirminnileg. Perez var kátur og þótti gaman að þessum íslenska með ísraelska nafnið. Í stofu forsætisráðherrans á Þingvöllum hélt Davíð ræðu sem kætti flesta Ísraelana. Hann lauk tölu sinni með því að segja: „Israel is God’s chosen people but the Icelanders are God’s frozen people!” Guðs útvalda þjóð og hin freðna! Meðfylgjandi mynd er frá því eftirminnilega Þingvallakvöldi. Guð geymi Davíð í gleðiríki sínu og styrki Ástríði, Þorstein og ástvini hans.
Ólafur Davíðsson, ráðuneytisstjóri, er Shimon Perez til hægri handar en sá alvarlegi á myndinni, Davíð til vinstri handar, var starfsmaður ísralesku utanríkisþjónustunnar og fylgdarmaður Perez.